Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu.
Viðtalið við Sturlu varð fljótt að heimsfrétt og stal allri athyglinni frá gullverðlaunahafanum.
Í kjölfarið hefur hann verið gagnrýndur fyrir tímasetninguna og hann bað gullverðlaunahafann Johan-Olav Botn afsökunar strax sama dag.
Á miðvikudaginn baðst hann aftur afsökunar, í þetta sinn fyrir framan allt landsliðið.
„Ég held að það hafi verið rétt að gera það í gærkvöldi. Ég held að hann hafi þurft að biðjast afsökunar, líka fyrir sjálfan sig,“ sagði landsliðsþjálfarinn Siegfried Mazet við NRK á fimmtudag.
Bæði karlar og konur voru viðstödd í kvöldverðinum. Lægreid fær hrós frá liðsfélögum sínum fyrir að hafa tekið til máls.
„Mér fannst það gott. Við höfum jú tekið eftir því að eitthvað hefur verið að hjá honum en vissum ekki hvað það var fyrr en hann sagði það. Mér finnst að nú getum við kannski látið þetta mál niður falla,“ sagði Karoline Knotten við NRK.