Kafarar á vegum lögreglunnar í New York-borg hafa unnið linnulaust í allan dag í tjörn í Central Park-almenningsgarði við leit að skotvopni árásarmannsins sem skaut forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna til bana á miðvikudaginn. Leit að manninum hefur staðið yfir í fjóra daga, án árangurs.
Fréttastofa CNN greinir frá.
Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare var skotinn til bana fyrir utan hótel á Manhattan-eyju í New York borg á miðvikudaginn þar sem Thompson var að halda árlega fjárfestaráðstefnu. Maðurinn sem skaut hann til bana flúði vettvang á hjóli í Central Park-almenningsgarð þar sem honum tókst að hylja slóð sína.
Nú er talið að árásarmaðurinn hafi síðan yfirgefið borgina um borð í rútu á leið til Atlanta-borgar. Hann gæti því verið staddur hvar sem er um þessar mundir. Byssan sem maðurinn notaði við voðaverkið er enn ófundin. Hjólið sem hann notaði til að flýja vettvang er sömuleiðis ófundið.
Lögreglan leitaði í gær að bakpoka mannsins með hjálp fjölda dróna. Nú virðist sem svo að bakpokinn sé fundinn. Lögreglan rannsakar nú bakpoka sem þau fundu í gærkvöldi en hefur ekki staðfest að um réttan bakpoka sé að ræða.
Alríkislögreglan í Bandaríkjunum (FBI) hefur gefið út að hver sá sem veitir upplýsingar sem leiðir til handtöku árásarmannsins verði verðlaunaður með allt að 50 þúsund Bandaríkjadölum.
Borgarstjóri New York, Eric Adams, sagði í dag að það væri augljóslega jákvætt að bakpokinn hafi fundist.
„Leyfið honum að halda áfram að trúa að hann geti falið sig á bak við grímu. Við munum komast að því hver hann er og láta hann sæta ábyrgð,“ sagði Adams.