Icelandair segir félagið líta lágflug farþegaflugvélar yfir Vestmannaeyjum laugardaginn 11. apríl síðastliðinn, mjög alvarlegum augum. Atvikið er nú er til rannsóknar hjá Samgöngustofu.
„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum. Atvikið hefur verið tekið til rannsóknar og mun sú rannsókn leiða frekari niðurstöður í ljós. Við munum að sjálfsögðu aðstoða yfirvöld við þá rannsókn,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu frá félaginu.
Flugvélin var í farþegaflugi frá Frankfurt þegar hún flaug lágflug yfir Vestmannaeyjar. Samkvæmt Icelandair var lágflugið hvorki á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins.
Ábyrgðarmenn félagsins tilkynntu atvikið til Samgöngustofu og lögreglu um leið og upplýsingar bárust um það, líkt og þeim ber skylda til.
Tjá sig ekki frekar
Í tilkynningunni segir að lög og reglugerðir sem gilda um flug séu settar í öryggisskyni og að starfsfólki Icelandair sem og félaginu beri skylda til að fara eftir þeim í hvívetna.
Bogi segir jafnframt að þrátt fyrir að talið sé að um stakt tilfelli sé að ræða muni félagið árétta við starfsfólk sitt það verklag og þær reglur sem því beri ávallt að fylgja.
Icelandair hyggst ekki tjá sig frekar um málið á meðan rannsókn stendur yfir.