Þingmenn stigu einn af öðrum í pontu Alþingis í dag í umræðu um fundarstjórn forseta og kölluðu eftir því að þingforseti skapaði rými í dagskránni til þess að fá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra til umræðu í þinginu.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, léði máls á ummælum sem Kristrún lét falla á opnum fundi utanríkismálanefndar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB.
„Í inngangsorðum þá komu fram upplýsingar er varða yfirvofandi atkvæðagreiðslu í lok ágúst um svokallaðar áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið sem eru þess eðlis að ég verð að óska eftir því að virðulegur forseti skapi tíma hér í störfum þingsins til að hægt sé að ræða þá breytingu, þá eðlisbreytingu sem nú virðist orðin á málinu,“ sagði Bergþór.
Vísaði hann til þess að ferlið væri samkvæmt forsætisráðherranum skyndilega orðið þriggja fasa í stað tveggja.
„Verði niðurstaðan sú að landsmenn segi já þá hefur hingað til verið talað á þeim nótum að seinni fasi væri atkvæðagreiðsla um samning sem lægi fyrir. Í gær kom í ljós að Kristrún Frostadóttir, hæstvirtur forsætisráðherra, virðist ætla að leggja eitthvert sjálfstætt mat á það hvort samningurinn verður lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu.“
Bergþór sagði að fólk sem vildi greiða atkvæði með því að „kíkja í pakkann“ hefði nú enga vissu um að það fengi að „kíkja í pakkann“, í ljósi þess að forsætisráðherra hyggst ekki endilega leggja samninginn fyrir þjóðina að afloknum viðræðum.
„Þetta voru ekki forsendurnar sem málið var rætt út frá við fyrstu umræðu þess, sagði hann.
Þorgrímur Sigmundsson, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn B. Sæmundsson, samflokksmenn Bergþórs, stigu í pontu og tóku undir ósk Bergþórs. Það gerðu líka þau Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir og Jens Garðar Helgason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.