Lögmaður eldri manns sem kúgaður var um 108 milljónir af íslenskum fjárkúgurum hefur aldrei séð eins umfangsmikið fjárkúgunarmál hér á landi.
„Ég hef tekið að mér svipuð mál en þessi fjárhæð er hærri en ég hef heyrt um. Þetta er með ólíkindum hvað þetta er mikið af peningum og ég hef ekki séð neitt þessu líkt,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður mannsins, í samtali við mbl.is.
mbl.is ræddi í liðinni viku við Jón Þorstein Sigurðsson, vin mannsins, sem rakti sögu hans.
Fengu engin viðbrögð frá lögreglu
„Þegar ég fæ þetta inn á mitt borð hafði hann sjálfur verið búinn að reyna að fá lögregluna til að aðstoða sig,“ segir Ómar.
Það hafi hann gert á lögreglustöðinni á Dalvegi og á Hverfisgötu auk þess sem aðstandendur hans hafi sent lögreglunni tölvupósta vegna málsins.
Á því stigi málsins hafði maðurinn verið kúgaður um margar milljónir króna og sérsveitin hafði meðal annars verið kölluð út á heimili mannsins þegar honum var hótað með hnífi.
„Honum fannst hann ekki fá nein viðbrögð frá lögreglunni og var þá búinn að millifæra aleiguna inn á þetta fólk og enginn hafði haft samband við hann og lögreglan kannaðist ekki við að hann hefði lagt fram kæru.“
Málinu að lokum komið í réttan farveg
Leitaði maðurinn þá til Ómars sem hafði samband við kærumóttöku lögreglunnar, fékk tíma og mætti með manninum daginn eftir.
„Okkur var þá í rauninni bara neitað um að gefa skýrslu, lögreglan skildi ekkert hvað var í gangi og þetta var allt eitthvað voðalega skrýtið,“ segir hann.
„Þetta er bara eitthvað bullshit sem ég þoli ekki, fólk á að geta leitað til lögreglu án þess að þurfa að borga einhverjum lögmanni úti í bæ fyrir að setja fram kæru með einhverjum sómasamlegum hætti.“
Hann hafi í kjölfarið sent erindi á lögregluna og eftir það hafi málinu verið komið í eðlilegan farveg og fékk maðurinn síma með krækju sem gerir það að verkum að símtöl hans við 112 fá forgang.
Málið hafi síðan verið tekið föstum höndum og þrír Íslendingar úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Ómar kveðst þó ekki vita hvar rannsókn málsins er stödd í dag.
Óljóst hvort hægt sé að endurheimta peninginn
Verður hægt að endurheimta peninga mannsins?
„Það er ómögulegt að segja en ég ætla að reyna að endurheimta eins mikið af þessum fjármunum og ég mögulega get, en hversu raunhæft það er veit ég ekki,“ segir Ómar.
„Ég veit ekki hvort þeir séu búnir að eyða þessum peningum eða koma þeim undan. Ég vona að lögreglan skoði það gaumgæfilega og kyrrsetji eignir þeirra ef svo ber undir þannig að hægt sé að tryggja einhverja endurheimt.“