Fimmtán laxar komu á land á opnunarvaktinni í Norðurá í morgun. Allt voru þetta tveggja ára fiskar og upp í 93 sentímetrar. Einn smálax misstist að öllum líkindum á Hvararhylsbroti. Menn voru búnir að sjá töluvert af laxi í Norðurá og ríkti því verulega spenna um hvernig myndi ganga. Óhætt er að segja að staðið hafi verið undir þeim væntingum sem veiðimenn gerðu til opnunarinnar.
Það er ljóst að laxinn sem er að mæta núna er í góðu standi. Opnunarvaktin í ár gaf 15 laxa á móti 9 í fyrra og 10 árið 2024. Björn Björnsson með fallega hrygnu.
Ljósmynd/Rafn Valur Alfreðsson
Í fyrra gaf fyrsta vakt níu laxa og árið 2024 voru þeir tíu. Þetta er því nokkru meira en síðustu tvö ár. Vandasamt er að lesa mikið í það engu að síður. Skilyrði voru fullkomin núna. Gott vatn og milt veður.
Laxar fengust á öllum hefðbundnu stöðunum og tveir á milli fossa á Réttarhylsbroti. Byrjunin lofar góðu og vonandi er þetta einhver vísbending um að sumarið verði betra en í fyrra.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður |
Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 100 cm | Hrútafjarðará | Jón Tómas Rúnarsson |
23. september 23.9. |
| 102 cm | Ytri Rangá | Skjöldur Pálmason |
21. september 21.9. |
| 100 cm | Miðá í Dölum | Eyrún Ýr Guðmundsdóttir |
21. september 21.9. |
| 100 cm | Grímsá | Jón Jónsson |
18. september 18.9. |
| 101 cm | Miðsvæðið Laxá í Aðaldal | Helgi Jóhannesson |
17. september 17.9. |
| 105 cm | Hofsá | Sveinn Blöndal |
15. september 15.9. |
| 106 cm | Laxá í Aðaldal | Sigvaldi A. Lárusson |
14. september 14.9. |

