Sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO segist hafa með sínum eigin augum fengið að sjá hvernig heræfingar bandamanna hér á landi veita bandamannaherjum forskot í aðgerðum og tryggja öryggi á norðurslóðum.
Varnaræfingin Norður-Víkingur hófst í þessari viku en um er að ræða umfangsmestu varnaræfingu sem fram fer hér á landi.
Æfingin er haldin annað hvert ár og taka um 1.200 manns þátt frá 12 ríkjum NATO, þar á meðal um 150 til 200 Íslendingar.
Íslensk tækni veiti forskot
Í færslu sendinefndar Bandaríkjanna til NATO á Facebook fjallar Matt Whitaker, sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO, um varnaræfingarnar.
„Á æfingunni Norður-Víkingur á Íslandi sá ég af eigin raun hvernig bandarískar og íslenskar hersveitir æfa ásamt öðrum bandamönnum NATO til að vernda mikilvægar siglingaleiðir og tryggja öryggi á norðurslóðum, og hvernig íslensk tækni veitir bandamannaherjum forskot í aðgerðum. Að byggja upp viðbúnað okkar og getu mun fæla ógnir frá og verja bandalagið á norðurslóðum,“ segir Whitaker í færslunni.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandsfærsluna: