„Það sem er einna markverðast við Vegvísi Norðurlanda (e. Nordic Compass) er að einkaframtakið ber hitann og þungann af vinnunni,“ segir Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi hf. og eini Íslendingurinn í stjórn verkefnisins, en aðrir í stjórninni eru m.a. formaður hópsins, Jyrki Katainen (Nordea), fv. forsætisráðherra Finnlands, Jacob Wallenberg (Investor AB) frá Svíþjóð, og Øyvind Eriksen (Aker ASA) frá Noregi.
Vegvísir Norðurlanda er nýr samstarfsvettvangur fulltrúa atvinnulífs Norðurlandanna sem kynntur er í dag, samtímis á öllum Norðurlöndunum. Markmið verkefnisins er að styrkja samkeppnishæfni og viðnámsþrótt Norðurlandanna á sviði fjármálamarkaða, djúptækni (e. deep tech), varnarmála og orkumála og ná mælanlegum ávinningi með kjörnuðum tillögum.
Ísland mun hafa sterka rödd
Tildrög verkefnisins eru að hluta byggð á niðurstöðum Draghi-skýrslunnar sem sýndu fram á minnkandi samkeppnishæfni Evrópu. Markmið Vegvísisins er að sameina krafta leiðandi fyrirtækja á Norðurlöndum til að koma með skýrar tillögur að aðgerðum sem skila mælanlegum árangri. Norðurlöndin eru 12. stærsta hagkerfi heims með 28 milljónir íbúa, sterkar stofnanir og mikla gerjun í nýsköpun. Saman eru löndin mikilvægt afl á alþjóðasviðinu.
„Frumkvæðið kemur frá einkafyrirtækjum á Norðurlöndunum sem taka þátt í verkefninu, og þátttakendurnir eru lykilfélög í atvinnulífi Norðurlandanna. Það er mikill heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni,“ segir Ásta og bendir á að Ísland muni hafa sterka rödd í verkefninu því forystufólk úr íslensku atvinnulífi taki þátt í fagsviðum verkefnisins.
„Ragna Árnadóttir forstjóri Landnets tekur sæti í ráðgjafanefnd,“ segir Ásta og bætir við að verkefnið minni um margt á samráðsvettvanginn sem stofnað var til árið 2013 út frá McKinsey-skýrslunni 2012, nema þá var formlega unnið beint með stjórnvöldum. „Þá var Ragna í forsvari fyrir verkefnið og ég ráðgjafi hjá McKinsey, svo við erum að hittast núna aftur á Norðurlandaslóðum með svipað markmið, sem er að búa til hagnýtar og áþreifanlegar tillögur fyrir þessi fjögur svið sem verið er að vinna með.“
Ásta segir að sem dæmi um það verði Sveinn Sölvason, forstjóri Embla Medical, og Eva Sóley Guðbjartsdóttir aðstoðarforstjóri atNorth formlegir stofnendur að vettvanginum og taki beinan þátt í vinnunni sem tengist tveimur lykilverksviðum. Þá verður Sigurður Hannesson fulltrúi Samtaka iðnaðarins í hópi með öðrum norrænum samtökum atvinnulífsins í verkefninu.
Framkvæmanlegar lausnir
„Það sem heillar mig við Vegvísi Norðurlandanna er að einkageirinn er að finna hagnýtar lausnir til að koma í framkvæmd. Við viljum ekki bara ræða málin og skrifa skýrslur, heldur koma verkefnum hratt og vel á koppinn sem styrkja Norðurlöndin sem heild.“
Ráðstefna Nordic Summit verður haldin í Gautaborg dagana 4.-5. nóvember 2026, þar sem 150 leiðtogar úr atvinnulífi, fulltrúar stjórnvalda og aðrir úr samfélaginu munu koma saman til að styðja við tillögur vinnuhópanna og ýta undir innleiðingu þeirra.
Ásta segir að ljóst sé að heimurinn sé í miklum breytingarfasa. „Damon Sims, forstjóri J.P. Morgan, hefur nýlega sagt að heimurinn standi nú frammi fyrir meiri óvissu en í mjög langan tíma. Það sé geópólitískur óstöðugleiki og hrikti talsvert í hagkerfum heimsins. Við þurfum að spyrja okkur við þessar aðstæður hvernig næstu ár muni líta út og tryggja samkeppnishæfni og þrótt Norðurlandanna. Þess vegna er mikilvægt að þau sameinist í þessari vegferð,“ segir Ásta og segir að breytingarnar séu örar og því mikilvægt að geta brugðist hratt við.
Norðurlöndin eru framsækin
„Norðurlöndin eru þekkt fyrir mikil lífsgæði, öflugt atvinnulíf, jafnrétti og traust stjórnarfar. Þetta eru eftirsótt verðmæti í heiminum öllum. Hér vill framsækið fólk búa,“ segir Ásta og bætir við að það sé mikilvægt fyrir Norðurlöndin að vera ekki of þung á sér þegar kemur að viðbrögðum við breyttu alþjóðlegu landslagi. „Sögulega hafa Norðurlöndin alltaf staðið þéttar saman þegar þau mæta áskorunum, og tilgangurinn núna er að styrkja þetta mikilvæga svæði fyrir framtíðina.“
Ráðstefnan Nordic Summit verður haldin í Gautaborg 4.-5. nóvember nk. þar sem verkefni verða kynnt.
Ljósmynd/Tony Webster
