„Úff, þetta er stærsta spurningin!“ sagði knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir í samtali við mbl.is í Knatthúsi Hauka í Hafnarfirði í dag þegar hún ræddi um tíma sinn og afrek á sextán ára atvinnumannaferli sínum.
Sara Björk, sem er 35 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið sitt í dag eftir sextán ár í atvinnumennsku.
„Þurfum við ekki bara að fara í settið og fara yfir þetta. Þegar ég horfi á þetta núna eru þetta titlarnir sem maður var að sækjast aftur. Maður setti sig í erfiðar aðstæður og vildi sjá hversu langt maður gæti farið. Það var alltaf markmiðið en á sama tíma, á þessari vegferð, þá ertu að fara til fimm mismunandi landa. Þú kynnist ótrúlegu fólki á leiðinni og mikið af þessu fólki eru mínir bestu vinir í dag,“ sagði Sara Björk.
Kom heim með seinni bylgunni
Sara Björk lék með Rosengård í Svíþjóð, Wolfsburg í Þýskalandi, Lyon í Frakklandi, Juventus á Ítalíu og loks Al Qadsiah í Sádi-Arabíu á afar farsælum atvinnumannaferli þar sem að hún varð tvívegis Evrópumeistari, níu sinnum landsmeistari og margfaldur bikarmeistari líka.
„Þetta var mikill lærdómur og ég hef breyst ofboðslega mikið og þetta hefur verið ótrúlega þroskandi líka. Þetta er eitt það besta sem ég hef gert, að hafa farið út, en ég tek ekki bara titlana og sigrana út úr þessu heldur svo margt annað,“ sagði Sara Björk meðal annars en ítarlegt viðtal við hana má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.