Málstofa og sýning um íslensk námsgögn fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð klukkan 16–18 í dag.
Markmið málstofunnar er að varpa ljósi á þá þróun, nýsköpun og fjölbreytni sem á sér stað í íslenskri útgáfu og þróun námsgagna.
Á dagskrá málstofunnar sem ber yfirskriftina Íslensk námsgögn – hvað er til? eru stutt erindi frá fulltrúum menntakerfisins og útgáfugeirans.
Erindi úr ýmsum áttum
Meðal þeirra sem flytja erindi eru Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS), Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara, Páll Ásgeir Torfason frá MMS, Þórunn Rakel Gylfadóttir frá Hagþenki, Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, Guðjón Hreinn Hauksson frá Kennarasambandi Íslands og Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna og formaður IEI.
Fylgjast má með málstofunni í beinu streymi hér að neðan: