Að minnsta kosti 27 manns hafa látist eftir að rússneskur dróni gerði árás á birgðastöð skammt frá vesturhluta Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í nótt. Mikill eldur kviknaði og þá urðu miklar sprengingar að sögn yfirvalda.
Birgðastöðin virðist hafa geymt hluti sem mikil sprengihætta var af að sögn úkraínskra yfirvalda. Volodimír Selenskí forseti Úkraínu gaf í skyn að skotfærum væri um að kenna.
„Þeir sem leyfðu þessu að gerast verða að axla ábyrgð á ákvörðunum sínum […] ekki má geyma skotfæri nálægt heimilum eða öðrum íbúðarsvæðum,“ skrifaði hann í færslu á X.
Bæði Rússland og Úkraína hafa aukið langdrægar árásir sínar hvort á annað á undanförnum mánuðum, sem hefur valdið eldsvoðum og leitt til mesta mannfalls meðal almennra borgara síðan Moskva réðst inn í landið árið 2022.
Mörg hundruð manns flutt á brott
Fréttamenn AFP sáu gríðarlegan svartan reykjarmökk stíga upp yfir vesturhluta úthverfa höfuðborgarinnar, en embættismenn sögðu að hundruð manna hefðu verið flutt af svæðinu.
Sprengingin olli skemmdum á nærliggjandi íbúðarsvæðum, auk hjúkrunarheimilis fyrir aldraða og fatlaða, að sögn Selenskí.
„Eins og staðan er núna hafa 27 manns verið tilkynntir látnir. Einn þeirra sem létust var sveitarstjóri Dmytrivka-sveitarfélagsins, Taras Didych. Hann var að bjarga fólki,“ bætti hann við.
Birgðastöðin var staðsett í bænum Myla í vesturjaðri Kænugarðs.
Embættismenn sögðu ekki hvort um væri að ræða hernaðar- eða borgaralegt fyrirtæki.