Einhver óprúttinn fór inn fyrir girðingu sveitarbæjarins Kambakots í Húnaþingi og breytti skilaboðum á heyrúllu sem stillt hafði verið upp með límmiða sem á stóð „ESB, nei takk.“
Nú styttist óðum í þjóðaratkvæðagreiðsluna sem verður haldin 29. ágúst um að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þegar ferðast er innanlands þessa dagana má víðast hvar sjá heyrúllur með límmiðum sem á standa skilaboðin „ESB, nei takk“ en bændur hafa mikið látið til sín taka í umræðum um mögulega aðild Íslands að ESB.
Klifraði yfir girðinguna
„Þegar pólitísk tjáning fer yfir mörk eignarréttar.“
Á þessum orðum hefst ný Facebook-færsla Erlu Jónsdóttur sem býr á sveitabænum sem um ræðir. Í færslunni segir Erla frá því að einhverjum hafi þótt rétt að breyta þeim skilaboðum sem voru á rúllunni.
„Það sem gerðist var ekki að einhver gekk fram hjá og lýsti yfir annarri skoðun. Viðkomandi klifraði yfir girðingu, fór að heyrúllunni, reif niður miðann okkar og skrifaði síðan „JÁ til að sjá” á sjálfa rúlluna,“ segir hún í færslunni, en Já til að sjá er hreyfing sem hvetur landsmenn til þess að kjósa „já“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst.
Skemmdarverkið unnið í tvennu lagi
Blaðamaður mbl.is sló á þráðinn til Erlu og spurði hvort hún hefði orðið vitni að skemmdarverkunum.
„Nei, við vorum ekki heima þegar þetta var gert, en það var klárlega farið inn fyrir girðinguna, sem er náttúrulega óheimilt,“ segir Erla við mbl.is.
Hún bætir við að verkið hafi verið unnið í tvennu lagi.
„Fyrst hefur miðinn verið rifinn af rúllunni og svo var aftur komið og skrifað á hana. Við héldum fyrst að hann hefði bara fokið af því að það var rigning og rok, en svo kom í ljós að hann var rifinn af.“
„Ég má hafa mína skoðun“
Í færslunni nefnir Erla að samkvæmt íslenskum lögum er eignarrétturinn friðhelgur samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar. Sömuleiðis sé tjáningarfrelsið verndað samkvæmt 73. gr. Tjáningarfrelsið gefi þó fólki ekki rétt til að fara inn á eign annarra og breyta eða skemma eignina.
„Þetta snýst því í mínum huga ekki fyrst og fremst um ESB heldur mjög einföld prinsipp: Þú mátt hafa þína skoðun. Ég má hafa mína skoðun. Þú mátt tjá þína skoðun á þínum eignum. En þú mátt ekki fara inn á mitt land og nota mína eign til að tjá þína skoðun án míns leyfis.“
„Pólitísk skoðun er frjáls. Aðgangur að eignum annarra og meðferð á eignum þeirra er það ekki,“ segir hún í færslunni.
Að endingu segir Erla mikla eftirspurn meðal bænda eftir miðum sem þessum.
„Ef það eru fleiri miðar á lausu þá veit ég um fullt af fólki sem vill vera með.“