Þrátt fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sé að eigin sögn yfirleitt feiminn við að vera á persónulegu nótunum á netinu leyfði hann sér að deila frásögn af ljúfri kvöldstund með fjölskyldunni á Facebook fyrr í kvöld og kynnti þar til leiks nýjan fjölskyldumeðlim – lítinn hvolp sem virðist vera af Havanese-kyni.
„Ég er yfirleitt feiminn við að vera á persónulegu nótunum en einstaka sinnum koma dagar sem þróast þannig að það verður freistandi að segja frá því,“ segir í færslu Sigmundar.
Þegar hann hélt loks heim á leið eftir hamagang sveitarstjórnarkosninga og ESB-atkvæðagreiðslu beið hans þar hvolpur, sem hann segist alveg geta vanist þrátt fyrir að hafa haft smávægilegar efasemdir um ráðahaginn áður en hvolpurinn mætti á heimilið.
Þá lýsir Sigmundur fallegri stund með dóttur sinni þar sem þau ákváðu að byrja að horfa á Sopranos-þættina margverðlaunuðu frá byrjun eftir að í ljós kom að myndirnar um Hobbitann voru ekki aðgengilegar.
„Dóttirin mátti ráða sjónvarpsefninu og lagði til Hobbitann sem hljómaði vel, en myndin var ekki aðgengileg. Þá sagði hún: „Ég var að byrja að horfa á þætti sem heita The Sopranos. Viltu horfa á það? Við getum byrjað á byrjuninni.”
Já, takk 🥹“