Framlenging sérlausnar Íslands vegna millilandaflugs innan ETS-kerfis ESB er mikilvæg og áfram verður unnið að varanlegri lausn, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair.
Þetta segir hann í kjölfar þess að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og íslensk stjórnvöld lýstu yfir sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausnina til ársins 2030.
„Í rekstrinum þurfum við að hugsa og taka ákvarðanir til langs tíma hvað varðar flugvélakaup og fleira. Þess vegna er mikilvægt að hafa langtímafyrirsjáanleika og varanlegar lausnir en ekki skammtímasérlausnir því að þrjú ár eru fljót að líða í okkar grein,“ segir hann.
Staðbundin lausn á alþjóðlegum vanda
Kostnaðurinn er mikill og verður áfram þrátt fyrir sérlausnina að sögn Boga.
„Á síðasta ári var umhverfiskostnaður hjá okkur um 5 milljarðar með sérlausninni og ef hún hefði dottið út hefði hann kannski hækkað í kringum 6 milljarða.“
Hann segir að Icelandair og flugrekendur í Evrópu telji heldur óheppilegt að ESB og Evrópa reyni að leysa alþjóðlegt vandamál með staðbundinni lausn.
„Flugrekstur er í eðli sínu alþjóðlegur og flugið færist þá bara til á hagkvæmari svæði. Það er mjög mikilvægt að unnið verði að því að finna alþjóðlega lausn en ekki staðbundið kerfi eins og verið er að vinna með núna,“ segir hann að lokum.