Verktakafyrirtækið Fagmót hefur tvívegis í sumar gert athugasemdir við afgreiðslu Kópavogsbæjar vegna lóða í Vatnsendahvarfi. Fyrirtækið vill nú skila tveimur lóðum við Stöðvarhvarf sem það bauð samtals tæpar 116 milljónir króna í.
Annars vegar hafa athugasemdir Fagmóts snúið að misvísandi upplýsingum frá bænum og hins vegar töfum á afhendingu lóða og afgreiðslu byggingaráforma.
Í öðru málinu hefur Kópavogsbær viðurkennt að mistök hafi verið gerð við upplýsingagjöf til fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í fundargerðum bæjarins.
Fengu misvísandi svör
Fagmót kvartaði í maí vegna lóða við Heiðarhvarf 1-3 og 9-11 eftir að fyrirtækið fékk misvísandi upplýsingar um hvort heimilt væri að byggja þar hús á einni hæð.
Í fyrstu var Fagmóti tjáð að einnar hæðar byggð gæti verið heimil. Síðar komst skipulagsdeild bæjarins að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki.
Kópavogsbær viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð við svörun fyrirspurnarinnar en sagði þau hafa verið leiðrétt þegar þau komu í ljós.
Meirihluti bæjarráðs sagði jafnframt að ráðist hefði verið í úrbætur vegna vandamála sem komið hefðu upp við lóðaúthlutanir í Vatnsendahvarfi. Meðal annars hefðu úthlutunargögn verið skýrð og unnið að einfaldari upplýsingagjöf til byggingaraðila.
Kallaði eftir óháðri úttekt
Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins, taldi málið kalla á óháða stjórnsýsluúttekt á umhverfissviði Kópavogsbæjar.
Hann sagði mikilvægt að byggingaraðilar gætu treyst þeim upplýsingum sem bærinn veitti þegar þeir byðu í lóðir.
Fagmót óskaði síðan í júní eftir að skila tveimur öðrum lóðum, að Stöðvarhvarfi 12 og 14. Fyrirtækið bauð 57,9 milljónir króna í byggingarrétt á hvorri lóð, samtals tæpar 116 milljónir króna.
Fagmót segir ástæður skilanna vera tafir á afhendingu lóðanna og langan afgreiðslutíma vegna samþykktar byggingaráforma. Lagt hefur verið til í bæjarráði að Kópavogsbær fallist á skil þeirra.