Íslenska nærfataverslunin Sassy er flutt á nýjan stað og af því tilefni buðu eigendur verslunarinnar í teiti á Dalvegi 30A. Vel var mætt í teitið enda á Sassy stóran aðdáendahóp. Sem er ekkert skrýtið því konur með heilbrigða sjálfsmynd vilja vera vel búnar innan klæða.
Það er náttúrlega ekki hægt að bjóða í teiti í undirfataverslun nema sýna það helsta og því var slegið upp leiftrandi tískusýningu. Sigríður Klingenberg, eða Sigga Kling eins og hún er kölluð, lét sig ekki vanta enda boðið upp á svalandi drykki og stuð. Auk þess var gestum boðið að láta húðflúra sig.
Nýja verslunin er stór og glæsileg og er lagt mikið upp úr glæsileika og að það fari vel um viðskiptavininn. Mikið er lagt í mátunarklefana sem eru sérhannaðir fyrir fólk í undarfataleit.
Eins og sjá má var einstök stemning í teitinu og allir í essinu sínu!








