Náttúrufræðistofnun leggur til að veiðidögum rjúpu fjölgi um alls 11 daga í ár frá því í fyrra en stofnunin hefur sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu tillögu sína þar um. Sem fyrr er lagt til að veitt verði fimm daga í viku, þ.e. frá föstudegi til þriðjudags, en veiðar verði óheimilar miðvikudaga og fimmtudaga. Fyrsti veiðidagur í rjúpu verður 23. október og á það við um öll veiðisvæði landsins.
Sem fyrr er landinu skipt upp í sex veiðisvæði og er veiðitími nokkuð breytilegur eftir landsvæðum. Það fyrirkomulag var tekið upp árið 2024 og er byggt á aðferðafræði nýrra stofnlíkana og svæðisbundinnar veiðistjórnunar.
Ólík þróun eftir landshlutum
Veiðitíminn er lengstur á Austurlandi, en þar verður veitt til 22. desember skv. tillögunni, á Norðurlandi og Vesturlandi lýkur veiðitímanum 1. desember, þann 24. nóvember á Vestfjörðum en stysta veiðitímabilið verður á Norðvesturlandi og Suðurlandi, þar verður veiði leyfð til 17. nóvember skv. tillögunni.
Náttúrufræðistofnun segir að talningar á rjúpu hafi sýnt nokkrar breytingar á fjölda rjúpna frá fyrra ári en þróun stofnstærðar hafi verið ólík eftir landshlutum. Áberandi fjölgun rjúpu hafi orðið á Suðurlandi, Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Austurlandi en á Vestfjörðum og Vesturlandi hafi fjöldi rjúpna verið svipaður og undanfarin ár. Á nokkrum talningarsvæðum, m.a. í Dölunum á Vesturlandi, á Skaga á Norðurlandi vestra og í Bakkafirði, á Tjörnesi og í Kelduhverfi hafi mælst mesti fjöldi rjúpna frá upphafi talninga.
Í tilkynningu Náttúrufræðistofnunar kemur fram að stofnbreytingar rjúpu á milli áranna 2025 og 2026 hafi verið mismunandi eftir svæðum og landshlutum. Í heildina hafi um 7% fleiri rjúpur sést í ár en í fyrra. Miðað við stofnvísitölur úr talningum síðustu 20 ára sé rjúpnastofninn við meðaltal á Vesturlandi og Suðurlandi en yfir meðaltali á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi.
Veruleg fækkun fálka
Svo sem kunnugt er hefur orðið veruleg fækkun fálka undanfarin ár og er fuglaflensu kennt um. Telur stofnunin líklegt að mikill þéttleiki rjúpna á sumum svæðum tengist fækkun fálka en niðurstöður úr vöktun fálka árið 2026 liggja þó ekki fyrir enn sem komið er.
Nefna má að ekkert vorhret varð á landinu í ár, sem væntanlega kemur rjúpnastofninum til góða, en sum vor hefur ungviði rjúpunnar orðið hart úti í kuldaköstum á vorin.
Segir stofnunin að skv. stofnlíkönum hafi rjúpnastofninn verið svipaður eða stærri sl. vor en í fyrra og var svo einnig á milli vora árin 2024 og 2025. Þá virðist árleg lifun fugla á árunum 2025 og 2026 hafa aukist, en veiðiálag hefur farið minnkandi allt frá árinu 2025, einkum á Norðausturlandi, Norðvesturlandi, Suðurlandi og Vestfjörðum.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem … en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður |
Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 100 cm | Kjarrá | Atli Örvarsson |
23. júlí 23.7. |
| 101 cm | Laxá í Aðaldal | Benjamín Kári Matthíasarson |
23. júlí 23.7. |
| 100 cm | Haffjarðará | Edward Joseph Hudson |
13. júlí 13.7. |
| 103 cm | Laxá í Aðaldal | Theódór Friðjónsson |
10. júlí 10.7. |
| 103 cm | Svalbarðsá | Þórður Ingi Júlíusson |
5. júlí 5.7. |
| Veiðiárið 2025: | |||
| 100 cm | Hrútafjarðará | Jón Tómas Rúnarsson |
23. september 23.9. |
| 100 cm | Miðá í Dölum | Eyrún Ýr Guðmundsdóttir |
21. september 21.9. |