Það er greinilegt að síðasta helgin í ágúst hefur orðið vinsæl til brúðkaupshalds. Bakarar og konditorar landsins höfðu margir í nógu að snúast um helgina og ekki síður gaman að fylgjast með því hvernig brúðkaupstertur verða sífellt fjölbreyttari og áhugaverðari.
Aurore Pélier Cady, eigandi Sweet Aurora Reykjavík, að Bergstaðarstræti 14 í miðborginni, leyfði fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að skyggnast á bak við tjöldin og fylgjast með gerð tveggja afar ólíkra brúðkaupsterta sem hún útbjó fyrir helgina.
Frönsk jarðarberjaterta fyrir 100 gesti
Önnur þeirra var stór, hringlaga fraisier-terta fyrir 100 manns. Fraisier er klassísk frönsk jarðarberjaterta sem byggist á ljósum kökubotni, ríkulegu mousseline-kremi og ferskum berjum.
Mousseline-krem er klassískt franskt krem þar sem smjöri er blandað saman við bökukrem. Útkoman er silkimjúk og loftkennd en um leið nægilega stöðug til að halda lögun sinni vel, eiginleiki sem kemur sér sérstaklega vel þegar ráðist er í tertu af þessari stærðargráðu.
Lögun tertunnar vakti jafnframt athygli. Hún var lág, breið og mikil um sig og minnti að því leyti á þær stóru, hringlaga brúðkaupstertur sem hafa verið áberandi í brúðkaupsveislum á Ítalíu undanfarin misseri, meðal annars í Toskana. Þar hafa svokallaðar millefoglie-tertur notið mikilla vinsælda, þótt uppbygging þeirra sé allt önnur en hinnar frönsku fraisier.
Rifsber og mokka í lengri og klassískari tertu
Hin brúðkaupstertan sem Aurore gerði um helgina var fyrir 80 manns og ekki síður eftirtektarverð. Þar var um að ræða ílanga rifsberja- og mokkatertu með hvítu kremi og ferskum rifsberjum ofan á.
Yfirbragðið var öllu klassískara en formið óvenjulegt; löng tertan teygði sig eftir borðinu og skreytingarnar fengu að njóta sín án þess að yfirbragðið yrði íburðarmikið.
Aurore er franskur konditor og hefur að baki umfangsmikla menntun og reynslu úr heimi franskrar kökugerðar. Hún nam fræðin við hinn virta Institut Paul Bocuse og starfaði í meira en áratug á hótelum og veitingastöðum í París, meðal annars á Hôtel George V og hjá KL Pâtisserie.
Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að hún skuli taka stórum og óvenjulegum brúðkaupstertum fagnandi. Um helgina voru það að minnsta kosti 180 brúðkaupsgestir sem fengu að njóta afrakstursins.