Spænski knattspyrnustjórinn Andoni Iraola vill fá fimm nýja leikmenn til Liverpool þegar hann tekur formlega við liðinu í vikunni.
Það er bandaríski miðillinn ESPN sem greinir frá þessu en Iraola, sem er 43 ára gamall, hefur samþykkt þriggja ára samningstilboð enska félagsins.
Leikmennirnir sem um ræðir eru sóknarmennirnir Yan Diomande, Bradley Barcola og Jarrod Bowen.
Miðju- og varnarmaður á listanum
Þá er miðjumaðurinn Adam Wharton einnig á óskalistanum sem og bakvörðurinn Denzel Dumfries.
Miklar breytingar hafa átt sér stað á leikmannahóp Liverpool en Mohamed Salah, Andy Robertson og Ibrahima Konaté hafa allir leikið sinn síðasta leik fyrir félagið.
Þá hafa þeir Alisson Becker, Curtis Jones, Joe Gomez og Federico Chiesa allir verið sterklega orðaður við brottfarir í sumar.