Mikil stemning er fram undan á Akureyri um helgina þegar Sumar- og bjórhátíð LYST fer fram í fjórða sinn. Reynir Grétarsson segir mikið hafa verið að gera í sumar og að viðtökurnar við Dinner á LYST hafi farið fram úr björtustu vonum. Á hátíðinni verða 13 brugghús og drykkjarframleiðendur með smakk, götubiti verður í aðalhlutverki og tónleikar með Daða Frey Péturssyni og Sturlu Atlas.
„Það hefur lítið annað komist að en vinna hjá mér síðustu mánuði. Opnunin á Dinner á LYST og svo þessi klassíska sumartörn á LYST og Kaffi LYST hefur tekið mestallan tímann,“ segir Reynir matreiðslumeistari og eigandi staðarins á Akureyri.
„Stærstu persónulegu fréttirnar eru líklega þær að við fengum okkur slátturvélmenni í garðinn heima, sem hefur vakið mikla lukku. Svo er kærkomið frí fram undan, en þá ætlum við móðir mín Svandís Þóroddsdóttir, faðir minn Grétar Örlygsson, ég og fjölskyldan mín, ásamt Oddi Grétarssyni bróður mínum og hans fjölskyldu, saman til Þýskalands.“
Veðrið hefur verið alls konar
Hvernig hefur verið að gera hjá þér undanfarið?
„Hér á Akureyri hefur sumarið farið einstaklega vel af stað. Það hefur verið mikið að gera, en það er alltaf gaman. Dinner á LYST hefur gengið mjög vel og við erum í skýjunum með móttökurnar. Það hefur verið mikil traffík af ferðamönnum, en Akureyringar hafa líka verið einstaklega duglegir að koma til okkar,“ segir Reynir.
Þegar talið berst að veðrinu segir Reynir það hafa verið upp og niður. „Síðustu daga hefur hitinn verið í kringum 20 gráður, þótt vindurinn hafi aðeins dregið úr sumaránægjunni. En það er alltaf logn og gott skjól í Lystigarðinum.“
Hvað er vinsælast núna í mat og drykk?
„Á Dinner á LYST hefur í raun allt verið vinsælt, en ef ég ætti að nefna eitthvað sérstaklega þá er tómataforrétturinn með þeyttum ricotta algjör stjarna og smálúðan í aðalrétt klikkar aldrei. Í eftirréttunum er það svo alltaf tíramísu sem stendur upp úr. Ég var mjög stoltur þegar níu manna ítalskt borð sagði að okkar tíramísu væri betra en flest sem þau hefðu smakkað á Ítalíu. Á LYST í hádeginu og yfir daginn eru það fiskur og grænmeti og fiskisúpan okkar sem tróna á toppnum.“
Sumar- og bjórhátíð LYST verður um helgina
„Um helgina verður stórviðburðurinn okkar haldinn, Sumar- og bjórhátíð LYST. Þá mæta 13 brugghús og drykkjarframleiðendur og bjóða upp á smakk á sínum vörum. Þetta er í fjórða sinn sem við höldum hátíðina og hún er alltaf jafn skemmtileg.
Ef fólk vill taka fullan þátt í dagskránni er best að kaupa armband á LYST.is. Það veitir afslætti víða um bæinn alla helgina og gefur fólki líka kost á að smakka að vild hjá brugghúsunum á laugardeginum milli klukkan 13.00 og 18.00. Þeir sem vilja bara kíkja við og taka aðeins þátt geta líka einfaldlega mætt á svæðið, en við verðum með sölu á „bjórtókenum“ og klippikortum. Hvort tveggja er frábær leið til að njóta dagsins, þó að ég mæli sjálfur helst með armbandinu.
Auk þess verðum við með „street food“-matartjald þar sem meðal annars verða lambaborgarar í brauðum frá Brauð & Co, pylsur, pítsur af grillinu með botnum frá Olifa og fleiri girnilegir réttir. Tony Mellado verður svo með sinn fræga saltfiskrétt og því verður þetta ekki bara bjórhátíð heldur líka sannkölluð matarveisla.
Jón Jónsson var ánægður á sumarhátíðinni í fyrra eins og myndin sýnir. Hann var einn af listamönnunum sem komu fram á hátíðinni.
Ljósmynd/Aðsend
Um kvöldið heldur stemningin áfram með glæsilegum tónleikum þar sem Daði Freyr og Sturla Atlas stíga á svið. Tónleikar í garðinum hafa alltaf verið frábær skemmtun og við höfum mikla trú á að þetta verði einstakt kvöld.“
Reynir reiknar með að um tvö þúsund gestir fari um garðinn á laugardaginn. „Það eru þó auðvitað ekki allir á leið til okkar, jafnvel þótt þeir gangi fram hjá, en vonandi kíkja sem flestir við í að minnsta kosti einn bjór. Ég yrði mjög ánægður ef við tækjum á móti um 1.000 gestum yfir daginn í mat og drykk og svo allt að 500 manns á tónleikana um kvöldið.“
Tryggvi Þór Traustason yfirkokkur LYST, Rafn Svansson yfirkokkur Dinner á LYST og Tony Mellado sáu um matinn fyrir gestina í fyrra. Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir stóð vaktina í þjónustunni og stóð sig eins og hetja.
Ljósmynd/Aðsend
Hátíðin hófst fyrir fjórum árum
Reynir rifjar upp söguna á bak við byrjunina á Sumar- og bjórhátíðinni. „Ég og vinur minn, Halldór Darri Guðjónsson, sem þá var bruggmeistari hjá BORG, vildum gera eitthvað skemmtilegt eina helgi. Undirbúningurinn var mjög lítill, við hentum í eina auglýsingu, vorum með tvo sumarbjóra á dælu úti og grilluðum pítsur. Rafn Svansson, sem er nú orðinn yfirkokkur hjá mér á Dinner á LYST, mætti meira að segja á frídeginum sínum til að aðstoða við pítsurnar.
Þetta sló svo svakalega í gegn að röðin virtist aldrei enda og náði langt út úr garðinum á köflum. Núna, fjórum árum síðar, erum við að gera þetta aftur, nema nú mæta 13 brugghús til leiks og stórt nafn eins og Daði Freyr kemur fram á tónleikum. Allt sprottið upp úr lítilli hugmynd sem var hrint í framkvæmd á rúmri viku sumarið 2022. Það er eiginlega ótrúlegt,“ segir Reynir Grétarsson að lokum.
Þegar hátíð er á Akureyri þá safnast fjölskyldur og vinir saman og gera sér glaðan dag.
Ljósmynd/Aðsend
Fólk á öllum aldri skemmtir sér vel á sumarhátíðinni. Hér má sjá Katrínu Emmu Jónsdóttur ásamt Leu Kareni Oddsdóttur.
Ljósmynd/Aðsend
Það myndast eins konar útilegustemning í Lystigarðinum fyrir framan LYST á sumarhátíðinni.
Ljósmynd/Aðsend
Tónlist, góð stemning og frábær félagsskapur er eitthvað sem Reynir segir verða á Akureyri næstu helgi líkt og í fyrra.
Ljósmynd/Aðsend
Óðinn Svan, Halldór Kristinn Harðarson og Aðalgeir Axelsson skemmtu sér vel á sumarhátíðinni í fyrra.
Ljósmynd/Aðsend









