Mikill viðbúnaður lögreglu er vegna skotárásar í Nørresundby rétt norðan við Álaborg í Danmörku að sögn danskra fjölmiðla og eru almennir borgarar hvattir til að halda sig fjarri að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Jótlandi.
Nokkrar sprengingar eiga að hafa heyrst á staðnum og nokkrir sjúkrabílar hafa einnig sést aka á staðinn, að því er Ekstra Bladet greinir frá. Þar segir einnig að þungvopnaðir lögreglumenn séu mættir á svæðið ásamt fjölmörgum lögreglumönnum.
Lögreglan á Norður-Jótlandi greinir frá því í fréttatilkynningu að lögreglumaður hafi orðið fyrir skoti.
Það gerðist þegar maður hóf skothríð á lögregluna þegar hún kom á vettvang. Lögreglan svaraði skothríðinni og var gerandinn skotinn í þeim átökum. Einnig varð lögreglumaður fyrir skoti, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar. Annar einstaklingur á staðnum varð einnig fyrir skoti.
„Við getum ekki tjáð okkur frekar um ástand þeirra, en það er alvarlegt og við erum með mikinn viðbúnað,“ segir Søren Pejtersen, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norður-Jótlandi.
Textinn hefur verið uppfærður