„Tilfinningin er frábær og ég er gríðarlega stoltur og ánægður með liðið mitt,“ sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari karlaliðs Vals í handbolta eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik gegn FH í kvöld. Ágúst er að þjálfa karlaliðið á sínu fyrsta tímabili og vann liðið bæði deildar- og Íslandsmeistaratitilinn á hans fyrsta tímabili með liðið.
„Ég er svo ánægður með hvernig við erum búnir að bæta okkur í vetur. Það er búið að ganga á mörgu í þessu einvígi. Baráttuandinn og sigurviljinn í strákunum mínum var algjörlega til fyrirmyndar. Þessir strákar eru alveg geggjaðir,“ sagði Ágúst spurður út í sigurinn í einvíginu við FH.
Klaufar að vera ekki meira yfir í hálfleik
Spurður út í leikinn sjálfan sagði Ágúst:
„Mér fannst við vera klaufar að vera ekki sex mörkum yfir í hálfleik. Mér fannst við fá mjög ódýrar tvær mínútur í lok fyrri hálfleiks sem voru okkur mjög dýrar. Þeir komust aðeins á bragðið fyrir vikið. Við hins vegar gáfumst ekkert upp og sýndum mikla seiglu og karakter að hafa landað þessu.“
Þetta var þitt fyrsta tímabil með liðið og tímabilið byrjaði ekkert sérstaklega vel hjá ykkur. Hvar komust Valsmenn á bragðið á þessu tímabili?
„Við Róbert og Jóhann Ingi tókum við þessu liði fyrir tímabilið og það tók bara tíma að koma okkar áherslum inn í hópinn. Jafnt og þétt bættum við okkur og æfðum vel í allan vetur. Ég er mjög heppinn með þjálfarateymi. Ég er með Róbert Gunnarsson mér til aðstoðar og Jóhann Inga markmannsþjálfara. Þeir hafa báðir unnið frábært starf. Sama á við um sjúkra- og styrktarþjálfara.“
Gunnar Róbertsson einn sá besti í deildinni
Bjóstu við því fyrir tímabilið að Valur myndi taka tvo titla á þínu fyrsta ári með liðið?
„Alveg eins. Ég var ekkert mikið að hugsa um það. Ég var búinn að vera níu ár með kvennaliðið þannig að ég vissi að það tæki tíma að koma mínum áherslum að. Ég vissi hins vegar að ég væri með gott lið og það var pressa á mér strax.
Það voru alls konar fjölmiðlamenn sem léku sér að því að setja mikla pressu á mig og spá okkur sigri í öllum leikjum og mótum. Við áttum nánast að bakka yfir deildina.
Við hins vegar erum að nota mikið af ungum strákum og erum að fara í gegnum hæg kynslóðaskipti. Hér eru nokkrir 17, 18 ára leikmenn sem eru að standa sig alveg frábærlega.
Ég verð að nefna Gunnar Róbertsson sem fær bara alls ekki nægilegt hrós fyrir sitt framlag. Það er alltaf verið að hrósa alls konar ungum leikmönnum en það tala allir um Gunnar Róbertsson eins og hann sé bara 35 ára. Gunnar er 17 ára og búinn að vera einn besti leikmaður deildarinnar í vetur.“
Framtíðin er þá björt hjá Valsmönnum í framtíðinni?
„Jú, við erum með gríðarlega öflugt starf hérna og mikið af ungum strákum að koma upp. Ég vil líka þakka stuðningsmönnum okkar fyrir að fylgja okkur alla leið í þessu. Valur er stórveldi sem er að berjast um titla í karla- og kvennaflokkum í öllum íþróttum og því ekkert sjálfgefið að fá svona stuðning. Ég vil því bara segja takk kærlega fyrir, kæru stuðningsmenn Vals,“ sagði Ágúst í samtali við mbl.is.