Stundum þarf húðin einfaldlega bara meiri raka, orku og ást. Þegar mikið liggur við er gott að eiga serum inni í skáp, smyrja því á sig fyrir nóttina og vakna allt önnur.
Þegar kemur að húðvörum er serum yfirleitt létt og næringarrík vara sem inniheldur mikinn styrk af virkum efnum sem vinna á ákveðnum húðvandamálum. Það er yfirleitt þynnra en rakakrem og gjarnan glær vökvi. Serum getur hjálpað húðinni við að gefa meiri raka, minnka hrukkur, bæta húðlit, draga úr bólum eða róa viðkvæma húð. Það fer allt eftir því hvaða innihaldsefni það inniheldur. Algeng efni í serum eru hýalúrónsýra, C-vítamín og retínól. Serum er venjulega notað eftir hreinsun á húð og áður en rakakrem er sett á.
Það er gríðarlega vinsæl vara í daglegri húðumhirðu og sérstaklega fyrir eldri húð. Hér eru nokkur frábær næturserum sem geta bjargað miklu.
Intense Regenerating Night Serum frá Day+
Þetta serum umbreytir húðinni á meðan þú sefur. Meðferðin er unnin úr 100% náttúrulegum innihaldsefnum og endurheimtir mýkt húðarinnar með því að mynda rakaverndandi húðfituhimnu. Húðin verður stinnari, kemst í jafnvægi og er betur undirbúin til að mæta utanaðkomandi áreiti næsta dag.
Fæst í Skincarelab og kostar 9.820 kr.
Shiseido Power Infusing Serum
Þetta serum hefur hlotið rúmlega 250 snyrtivöruverðlaun á heimsvísu. Ultimune er mest selda serumið frá Shiseido og snyrtivörurisinn telur eina flösku seld í heiminum á um 17 sekúndna fresti. Serumið hentar þeim sem leitast við að hægja á þroskamerkjum húðarinnar.
Formúlan er unnin úr gerjuðum Camellia-fræjum og jurtinni sjálfri. Hún styrkir varnarleg húðarinnar, eykur blóðflæði og frumuendurnýjun, mýkir húðina og eflir varnir hennar.
50 ML kosta 21.499 kr.
Mega Plump frá Talm
Þetta serum hentar vel fyrir þær sem eru með viðkvæma húð. Það hentar einnig vel fyrir þær sem eru barnshafandi eða nýbakaðar mæður. Þetta er afkastamikil formúla sem sameinar hýalúrónsýru og lífrænt plöntuþykkni til að veita djúpan raka, gerir húðina fyllri og sléttari. Þetta hentar einnig vel fyrir þær sem eru með þreytta húð. Formúlan eykur einnig ljóma og ferskleika og sefar viðkvæma húð.
Serumið kostar 7.990 kr. og fæst hjá Liv Boutique.
Dark Spot Exfoliating Sleep Milk frá goop Beauty
Þetta er silkimjúkt og áhrifaríkt serum með 10% glýkólsýru og mjólkursýru. Það vinnur yfir nótt og með reglulegri notkun fjarlægir það dauðar húðfrumur, endurnýjar húðina og gefur henni raka. Húðin verður ljómandi, slétt, minnkar mikið ásýnd húðholanna og mjúk eins og barnshúð.
Þó að serumið innihaldi sterkar AHA-sýrur sem veita öfluga endurnýjun húðarinnar, og hjálpar til við að bæta ójafnan húðlit, grófa áferð, fínar línur, slappleika í húð, bletti og stíflaðar svitaholur, er það jafnframt ótrúlega milt við húðina.
Fæst í Eliru og kostar 17.990 kr.
Anti-Aging Serum frá Chitocare
Þetta serum inniheldur lífvirka efnið kítósan úr hafinu við Íslandsstrendur og hýalúrónsýru sem dregur úr fínum línum. Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem er talið verja húðina, draga úr roða og pirringi, viðhalda raka og gefa húðinni silkimjúka áferð.
Húðraki, þéttleiki og teygjanleiki húðarinnar þykja aukast með notkun.
30 ML kosta 14.950 kr.




