Að minnsta kosti 12 manns særðust í skotbardaga í gærkvöld nálægt hverfishátíð í Toledo í Ohio í Bandaríkjunum og enginn grunaður er í haldi, að sögn lögreglu.
Yfirvöld leituðu á svæðinu að grunuðum, yfirheyrðu vitni og skoðuðu myndskeið úr farsímum eftir að talið var að að minnsta kosti tveir hefðu skipst á skotum nálægt Old West End-hátíðinni.
Tveir í lífshættu
„Tólf manns urðu fyrir skotum og eru tveir þeirra eru í lífshættu,“ sagði Joseph Heffernan, aðstoðarlögreglustjóri í Toledo, við fréttamenn og bætti við að enginn grunaður væri enn í haldi.
Hann sagði að svo virtist sem að minnsta kosti tveir skotmenn hefðu verið að verki og að þeir hefðu „líklega verið að skjóta hvor á annan.“
Leit stóð yfir og yfirvöld báðu íbúa að gefa sig fram með allar upplýsingar sem gætu hjálpað til við að finna skotmennina.
Dan Gerken lögreglufulltrúi sagði að meðalaldur fórnarlambanna væri um tvítugt. Hann lýsti yfir áhyggjum af umfangi ofbeldisins.
Old West End-hátíðin er vinsæl árleg samkoma með lifandi tónlist, götugleði og húsaskoðunum í sögulegu hverfi í Toledo. Mikill lögregluviðbúnaður var á hátíðinni þegar skotárásin átti sér stað, að sögn lögreglumanna.
At least 12 people were shot on Saturday near a festival in Toledo, Ohio, authorities said. Two of the victims are in critical condition.
Authorities believe there may have been multiple shooters, but there are no suspects in custody as of Saturday night.
“It appears as though… pic.twitter.com/cpuRf3JG2M
— CBS News (@CBSNews) June 7, 2026