99 manns drukknuðu í Þýskalandi í síðasta mánuði sem er mesti fjöldi frá því að methitabylgja gekk yfir Evrópu árið 2003, samkvæmt opinberum tölum.
Þýskaland var meðal þeirra landa sem urðu fyrir barðinu á kæfandi hitabylgju í síðasta mánuði í Vestur-Evrópu, sem setti hitamet á nokkrum stöðum víðs vegar um landið þegar hitinn fór upp í 41,7 gráður.
Landið hafði ekki skráð jafn mörg drukknunartilfelli síðan í hitabylgjunni í júní 2003, þegar 107 manns létust,“ segir í yfirlýsingu frá landssambandi þýskra björgunarsveita (DLRG).
Hitabylgjan í síðasta mánuði olli gróðureldum, ringulreið í lestarsamgöngum og aukinni dánartíðni í Þýskalandi.
Karlar líklegri til að taka of mikla áhættu
Þeir sem drukknuðu voru að mestu leyti ungir menn, að sögn landssambandsins en 40 þeirra voru yngri en 30 ára.
„Karlar eru líklegri til að taka of mikla áhættu og vanmeta hættur. Þeir fara einnig oftar í vatnið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna,“ sagði Ute Vogt, forseti DLRG.
Flest drukknunartilfellin áttu sér stað í vötnum og ám.