Veitingastaðir Ramen Momo munu ekki taka við greiðslum með reiðufé framar eftir að brotist var inn í svokallað prepp-eldhús staðanna í nótt.
Erna Pétursdóttir, sem á Ramen Momo ásamt eiginmanni sínum, Kunsang Tsering, segir í samtali við mbl.is að þjófarnir hafi tekið GoPro-myndavél, spjaldtölvu og rafskútu sem notuð var til að fara með sendingar á milli staða.
„Við vorum ekki með pening þarna, sem betur fer, þar sem þetta er bara preppeldhúsið okkar í Grandagarði,“ segir Elsa.
Hafa áhyggjur af innbrotum í hverfinu
„Við höfum ákveðið að hætta að taka við reiðufé á veitingastöðunum til þess að senda skilaboð um að það sé ekkert hér til að stela,“ bætir hún við.
mbl.is greindi frá því í gær að alls hefðu 43 innbrots- og þjófnaðarmál verið skráð á varðsvæði lögreglustöðvar 1 frá 1. júlí til dagsins í dag, þar af 20 í miðborg Reykjavíkur.
Elsa segir að þau hjónin og aðrir veitingastaðareigendur hafi áhyggjur af þessum „innbrotafaraldri“.
Þurfum að hafa augun opin
Elsa og Kunsang láta innbrotið þó ekki stoppa sig og opnuðu veitingastaðina í dag venju samkvæmt.
„Við viljum bara að minnsta kosti senda þau skilaboð að það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík og við þurfum að hafa augun opin,“ segir Elsa að lokum.
