Steven Gerrard, einn besti leikmaður í sögu Liverpool, telur að mikið verk sé óunnið fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Liverpool hafnaði í fimmta sæti deildarinnar í vor eftir að hafa orðið Englandsmeistari ári áður. Liðið spilaði langt undir væntingum og var hollenski stjórinn Arne Slot látinn fara fyrr í sumar.
Spánverjinn Andoni Iraola tók við og hefur Gerrard mikla trú á honum. Þrátt fyrir það viðurkennir hann jafnframt að hann hafi áhyggjur af stöðu mála hjá sínu gamla félagi.
Veit hvers konar verkefni bíður hans
Gerrard hefur mikla trú á nýjum knattspyrnustjóra liðsins, Andoni Iraola, en viðurkennir jafnframt að hann hafi áhyggjur af stöðu mála hjá sínu gamla félagi.
„Ég er ánægður með þessa ráðningu en ég veit líka hvers konar verkefni bíður hans,“ sagði Gerrard í samtali við Open Goal Sport.
Hann bendir á að Liverpool hafi átt erfitt uppdráttar á síðasta tímabili, sem endaði með því að Slot lét af störfum sem knattspyrnustjóri. Gerrard segir ljóst að félagið megi ekki lenda í sömu stöðu á ný.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá fannst mér Liverpool vera langt frá bestu liðunum í fyrra. Leikmannahópurinn þarf að breytast, við þurfum nýja menn inn og aðra út, og þeir sem eftir verða þurfa að bæta sig. Mikilvægustu leikmennirnir verða að standa undir væntingum.“
Mikil stemning í kringum nýja manninn
Þrátt fyrir áhyggjur sínar er Gerrard spenntur fyrir nýju tímabili og segir mikla eftirvæntingu koma með ráðningu Iraola.
„Það er gríðarlega mikið verk óunnið hjá Liverpool en hvað varðar spennuna og stemninguna í kringum nýja stjórann þá er ég algjörlega með.“