Fjórir leikir fóru fram í 20. Umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag og voru skoruð samtals 17 mörk í þeim.
Úrslit leikjanna
ÍA 1:1 FH
KA 3:5 KR
Keflavík 1:0 ÍBV
Stjarnan 4:2 Þór.
Markaveisla á Akureyri og Aron með þrennu
Það var sannkölluð markaveisla á Akureyri þegar KR vann KA 5:3
Það voru sex mörk skoruð í fyrri hálfleik í leik KA og KR. Aron Sigurðarson skoraði tvö fyrstu mörk leiksins á 4. og 9. mínútu leiksins.
KA-menn gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn með mörkum á 14. og 20. mínútu leiksins. Voru þar á ferðinni Hallgrímur Mar Steingrímsson og André Römer.
Fyrri hálfleik var langt frá því að vera lokið. Aron Sigurðarson skoraði þriðja mark sitt á 28. mínútu og kom KR yfir. Orri Hrafn Kjartansson skoraði fjórða mark KR og kom þeim í 4:2 á 37. mínútu leiksins sem voru hálfleikstölurnar.
KR-ingar gerðu út um leikinn strax á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Luke Rae gaf þá glæsilega fyrirgjöf á Eið Gauta Sæbjörnsson sem skallaði boltann glæsilega í netið á 49. mínútu og staðan orðin 5:2 fyrir KR.
KA-menn skoruðu sárabótamark alveg í blálok leiksins og var þar að verki Kári Gautason. Staðan var þá orðin 5 : 3 fyrir KR sem voru lokatölur leiksins.
Sigur í fyrsta leik hjá nýjum þjálfara Stjörnunnar
Stjarnan vann Þór 4:2 eftir að hafa komist 4:0 yfir í leiknum.
Fyrsta mark leiksins skoraði Örvar Eggertsson 6. mínútu eftir sendingu frá Birni Snæ Ingasyni.
Emil Atlason tvöfaldaði forystu Stjörnunnar á 41. Mínútu eftir fasta fyrirgjöf frá markaskoraranum Örvari Eggertssyni.
Það var síðan Birnir Snær Ingason sem skoraði þriðja mark Stjörnunnar á 45. mínútu eftir sendingu frá Emil Atlasyni.
Staðan í hálfleik 3:0 fyrir Stjörnuna.
Stjörnumenn veittu leikmönnum Þórs náðarhöggið á 61. Mínútu. Þá skoraði Emil Atlason fallegt mark eftir sendingu frá Örvari Loga Örvarssyni. Staðan var orðin 4:0 fyrir Stjörnuna.
Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark í sumar á 72. mínútu eftir sendingu frá Bjarna Guðjóni Brynjólfssyni. Staðan var orðin 4:1 fyrir Stjörnuna.
Þórsarar voru ekki hættir. Á 89. Mínútu skoraði Christian Greko Jakobsen skallamark eftir fyrirgjöf og var staðan orðin 4:2 fyrir Stjörnuna. Því miður kom markið of seint til þess að Þórsarar gætu sett pressu á Garðbæinga. Lokatölur 4:2 fyrir Stjörnuna.
Jafntefli á Skipaskaga
Það var tíðindalítill fyrri hálfleikurinn í leik ÍA og FH. Eina mark fyrri hálfleiksins var sjálfsmark frá Baldvin Þór Berndsen. Erlingur Agnarsson fékk boltann frá Kjartani Kára Halldórssyni. Skot Erlings var varið af Árna Marínó Einarssyni og þaðan fór boltinn í Baldvin og lak í netið. Staðan í hálfleik var 1:0 fyrir FH.
Skagamenn jöfnuðu leikinn á 64. mínútu. Skagamenn tóku aukaspyrnu inn í teig og þar mætti Gísli Eyjólfsson. Hann skallaði löngum skalla yfir markvörð FH og í netið. Staðan var orðin 1:1 sem reyndust lokatölur leiksins.
Keflavík – ÍBV
Keflavík tók á móti ÍBV í Reykjanesbæ. Fyrri hálfleikurinn var rólegur en eina mark hálfleiksins kom á 22. mínútu þegar Stefan Ljubicic skoraði eftir frábæra sendingu frá Eiði Orra Ragnarssyni. Staðan í hálfleik var 1:0 fyrir Keflavík.
Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik leiksins og endaði leikurinn því með 1:0 sigri Keflavíkur.

