Að minnsta kosti 39 manns létust í loftárásum Ísraela á Líbanon í dag samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum í Líbanon þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi milli ríkjanna.
Að því er kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins var þungamiðja árásanna í suðurhluta Líbanons og segir Ísraelsher segir að skotmörkin hafi verið tengd Hisbollah-samtökunum.
Fimmtán særðir, þar af þrjú börn
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons létust sjö manns, þar á meðal ung stúlka, í árás á þorpið Saksakiyeh. Í sömu árás særðust fimmtán manns, þar af þrjú börn.
Í yfirlýsingu Ísraelshers segir að árásirnar hafi beinst að byggingu þar sem finna mátti Hisbollah-liða.
Segir herinn jafnframt að gripið hefði verið til ákveðinna aðgerða til að draga úr hættu fyrir almenna borgara, m.a. með notkun nákvæmra vopna og loftrýmiseftirlits.
Segja 120 manns verið drepna undanfarna viku
Á sama tíma hefur Ísraelsher tilkynnt að þrír varaliðar hersins hafi særst í árás Hisbollah-samtakanna og er einn þeirra sagður alvarlega slasaður.
Að því er BBC greinir frá segir Hisbollah árásina vera hefnd fyrir áframhaldandi loftárásir Ísraela á Líbanon.
Þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið tilkynnt á milli ríkjanna í apríl hafa átök milli þeirra haldið áfram nánast daglega.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons hafa árásir Ísraela orðið yfir 120 manns að bana víðs vegar um Líbanon undanfarna viku, þar á meðal konum og börnum, en ráðuneytið gerir ekki greinarmun á vígamönnum Hisbollah og almennum borgurum.