Uppsetningu er nú svo gott sem lokið í íþróttahúsi ÍR, þar sem atkvæði Reykvíkinga verða talin.
Venjan er að atkvæðin séu talin í Laugardalshöll en vegna stórtónleika Herra Hnetusmjörs þurfti að grípa til annars fyrirkomulags.
Í samtali við mbl.is segir Ámundi Brynjólfsson, umsjónarmaður kjörstaða í Reykjavík, allt hafa gengið ljómandi vel við uppsetninguna.
Um 600 manns koma með einum eða öðrum hætti að framkvæmd kosninganna en kosið verður á 24 kjörstöðum.
mbl.is/Eyþór
600 manns og 24 kjörstaðir
„Ég og mitt teymi förum svo sannarlega á alla kjörstaðina, bara svona til þess að tryggja að allt sé í lagi og að allt sé að ganga eins og það á að ganga og bregðast þá við ef eitthvað kemur upp á og ef það er eitthvað sem þarf að laga.“
Um 600 manns koma með einum eða öðrum hætti að framkvæmd kosninganna en kosið verður á 24 kjörstöðum.
Þá segir Ámundi aðstöðuna í ÍR-heimilinu til fyrirmyndar.
„Gott aðgengi, gott bílaplan og salurinn náttúrulega bara fullvaxinn íþróttasalur.“




