Fundur fyrirsvarsmanna Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hófst í Karphúsinu klukkan 16 í dag.
Vinnudeilan hefur verið í hörðum hnút en á síðasta fundi deiluaðila sem haldinn var sl. fimmtudagskvöld kynntu samningamenn Icelandair tillögur sínar um lausn deilunnar fyrir samninganefnd flugmanna.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði þá í samtali við mbl.is að tillögurnar hafi verið nokkuð viðamiklar og falið í sér endurskoðun á allmörgum þáttum sem hafi verið til umræðu á síðustu fundum.
Þeir sem voru mættir fyrir hönd FÍA hafi í kjölfarið óskað eftir því að skoða hugmyndirnar í rólegheitum og má reikna með að farið verði yfir málin á fundi dagsins.
Ekki þurft að aflýsa flugferðum í eina viku
Þá hefur ekki þurft að fella niður neinar flugferðir vegna mönnunarvanda hjá Icelandair síðustu vikuna.
Er það í takti við það sem fram kom í fréttabréfi frá FÍA fyrir helgi þar sem flugmenn voru hvattir til þess að leggja flugfélaginu lið þegar upp koma forföll hjá áhöfnum.
Að undanförnu hefur fjöldi flugferða verið felldur niður vegna mönnunarvanda. Einna helst hefur hann helgast af því að flugmenn hafa ekki viljað koma úr vaktafríi til þess að manna flugferðir.