54 slösuðust og 18 er saknað eftir sprengingu í verksmiðju í Katar í gærkvöld að því er innanríkisráðuneyti Persaflóaríkisins greindi frá í dag.
„Tæknilegt atvik“ olli sprengingunni á sunnudag á Ras Laffan-iðnaðarsvæðinu í Katar, sagði ráðuneytið og bætti við að yfirvöld leituðu hinna týndu.
Ras Laffan hafði þegar orðið fyrir miklum skemmdum í stríði Bandaríkjanna og Írans, þar sem íranskar árásir beindust að orkuinnviðum við Persaflóa og neyddu Katar til að stöðva gasframleiðslu en Katar er einn helsti framleiðandi heims á fljótandi jarðgasi.
Ríkisfyrirtækið Qatar-Energy sagði að sprengingin hefði orðið „við upphaf starfsemi í Ras Laffan-iðnaðarborginni, sem leiddi til sprengingar og elds í Barzan-gasveitustöðinni“.