Lúsmý hefur verið mjög skætt á Suðurlandi hin síðustu ár og greindi DV frá því í viðtali við Steinar Smára Guðbergsson meindýraeyði árið 2020 að þá hefðu íbúar Hveragerðis einna helst orðið fyrir barðinu á þessum örsmáu vágestum sem einnig hefðu verið skæðir í Borgarfirði.
Lúsmý, mýflugutegund af ættinni Ceratopogonidae, sækir mjög í spendýr, þar á meðal mannfólk, safnast saman á húð þeirra og tekur þeim blóð.
Sylvía Líf Árnadóttir og maður hennar leigja ferðamönnum hús í Hveragerði og kveður Sylvía síðustu gesti hreinlega hafa flúið af vettvangi undan ásókn mýsins sem gestirnir, Bandaríkjamenn, töldu vera meindýr sem hefðust við í húsinu og kæmu innan úr því, ekki að utan.
Sylvía ræddi við mbl.is um óskemmtilega reynslu.
„Ég þreif húsið eftir síðustu gesti og undirbjó það fyrir þetta fólk,“ segir Sylvía, „þá kom ég auga á flugur í gluggakistunum en hélt bara að þetta væru venjulegar mýflugur og var ekkert að velta því sérstaklega fyrir mér,“ segir hún.
Vaknaði upp við urmul skilaboða
„Ég hugsaði ekkert út í að þetta væri lúsmý þótt ég viti vel hvernig það lítur út, þekki það úr sumarbústöðum, en nú hefur verið vindur og rigning í Hveragerði undanfarið og ég gerði mér bara ekki grein fyrir þessu,“ segir Sylvía sem ryksugaði mýið upp og gekk frá húsinu af kostgæfni fyrir nýja gesti.
Hún tók svo á móti fólkinu, sem leist vel á aðstæður í hvítvetna, og sofnaði að lokum svefni hinna réttlátu er leið að nóttu.
Sylvía Líf Árnadóttir hafði þrifið af kostgæfni og búið húsið vel undir næstu gesti. Regn- og vindasamt hefur verið í Hveragerði undanfarið og reiknaði hún því ekki með þeirri innrás sem varð.
Ljósmynd/Aðsend
„Þegar ég vaknaði biðu mín endalaus skilaboð frá þeim, þau höfðu sent skilaboð allt frá klukkan eitt til fimm um nóttina og fullt af myndum af þessum flugum. Þau héldu að þetta væri eitthvað úr húsinu og höfðu þess vegna gluggann opinn alla nóttina, vildu bara að þetta færi út en sáu svo hvernig alltaf fjölgaði í hópnum,“ segir Sylvía af ásókn fluganna smávöxnu.
„Ég hefði tjúllast sjálf“
„Þau voru alveg brjáluð, þetta var bara svona „horror story“ hjá þeim og ég skil þau vel, ég hefði tjúllast sjálf, glugginn í þessu svefnherbergi er alveg við rúmið. Ég fékk auðvitað sjokk, við erum nýbyrjuð að leigja húsið út og þau tékkuðu bara út eldsnemma um morguninn og hættu við seinni nóttina. Ég reyndi að afsaka þetta eins og ég gat, vissi varla hvað ég átti að segja, en lokaði glugganum og ryksugaði allar flugurnar upp,“ segir Sylvía.
Í kjölfarið lagði hún fram fyrirspurn með myndum í Facebook-hópi Hvergerðinga og spurði hvort þetta gæti verið eðlilegt magn af lúsmýi og hvaða net væri best að kaupa. Hefur henni borist fjöldi svara við fyrirspurninni og Hvergerðingar verið henni hinir hjálpsömustu.
Hún útskýrði svo málið fyrir viðskiptavinum sínum og bauð þeim fulla endurgreiðslu. „En það er eins og þau hafi ekki séð skilaboðin. Mér er alveg sama um peningana svo sem en ég vil bara að þau viti hið sanna í málinu, að þetta séu ekki meindýr sem halda til í húsinu,“ segir Sylvía sem nú er að ráðast í kaup á netum til varnar framtíðargestum og hyggst fræða komandi leigjendur og vara þá við.
Margur er knár þótt hann sé smár og þessar litlu blóðsugur geta valdið ofnæmisviðbrögðum og borið sýkla og dýrasjúkdóma á borð við blátungusýki.
Ljósmynd/Aðsend
Þykkt lag af flugum
„Hér hefur bara verið svo mikil rigning og vindur undanfarið að ég var ekkert að spá í þetta. Einn sem svaraði á Facebook spurði mig hvort vatn stæði einhvers staðar fyrir utan gluggann, til dæmis í fötu, og þar standa einmitt fjórir blómapottar, auðvitað er dren í þeim en samt er þar vatn og þetta hefur dregið lúsmýið að,“ segir Sylvía sem hyggst færa pottana.
„En þetta var ógeðslegt, þykkt lag af flugum í gluggakistunni í húsi sem ég hafði þrifið mjög vel daginn áður,“ segir Sylvía eftir samskipti gesta hennar við lúsmýið sem nægði til að stökkva þeim á flótta eftir hryllilega nótt.
Næstu gestir koma á morgun og um helgina á hún von á fólki sem verður í viku. „Ég held ég þurfi að fara svolítið vel yfir þetta með þeim,“ segir Sylvía Líf Árnadóttir að lokum, reynslunni ríkari eftir samskiptin við þessar örsmáu blóðsugur sem vilja sitt blóð og svífast einskis.

