Nokkuð hefur vantað upp á vegmerkingar á götum höfuðborgarinnar en bent hefur verið á að vinnubrögð við yfirborðsmerkingar á nýlega malbikuðum vegarköflum á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki alltaf verið sem skyldi.
Við nánari athugun virðast málningardropar hafa lekið meðfram merkingum víða, sem hefur vakið athygli vegfarenda. Má þar meðal annars nefna Eiðsgranda.
Í svari Vegagerðarinnar kemur fram að umræddur vegarkafli sé í hennar umsjón. Kaflinn hafi nýverið verið malbikaður og í framhaldinu merktur með yfirborðsmerkingum. Verkið var unnið af verktakanum Vegamálum sem undirverktaka Colas, sem bar ábyrgð á malbikuninni.
Vegagerðin staðfestir að fulltrúar bæði hennar og eftirlitsaðila hafi farið yfir málið. Niðurstaða athugunar bendir til þess að málning hafi lekið úr bíl verktaka meðan á merkingarvinnu stóð.
Að sögn Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir að málningardroparnir hverfi með umferð á næstu dögum eða vikum. Þá muni verktakinn jafnframt fara yfir búnað sinn og gera nauðsynlegar lagfæringar til að koma í veg fyrir frekari leka.
Vegagerðin bendir á að afleiðingar geti fylgt því ef vinnubrögð teljast ekki fullnægjandi. Slíkt geti meðal annars leitt til afsláttar, lagfæringa eða endurgerðar á verkþáttum.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem … en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.