Dregið var í Meistaradeild karla í handbolta í dag en keppnisfyrirkomulagið verður öðruvísi á næsta tímabili.
Í næsta verða 24 lið með í Meistaradeildinni en áður voru þau aðeins 16. Riðlarnir verða því sex og fjögur lið í hverjum riðli. Áður voru riðlarnir tveir og átta lið í hvorum riðli.
Evrópumeistarar Barcelona, sem markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og Janus Daði Smárason spila fyrir, verða með Montpellier, Dinamo Búkarest og Skanderborg, sem Kristján Örn Kristjánsson spilar fyrir, í riðli.
Íslendingalið Magdeburg, sem Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson leika fyrir, verður með Kielce, Kolstad og Kriens-Luzern í riðli.
Kristianstad, sem Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason spila fyrir, verður með Sporting, sem Orri Freyr Þorkelsson spilar fyrir, Pick Szeged og GOG í riðli.
Porto með Þorstein Leó Gunnarsson innanborðs verður með Füchse Berlín, Veszprém og Partizan Adimralbet í riðli.
Melsungen með Reyni Stefánsson verður með Nantes, Wisla Plock og Vardar í riðli.