Ísrael hefur undirritað þriggja milljarða evra vopnasamning við Grikkland, sem jafngildir um 430 milljörðum króna.
Um er að ræða eina stærstu vopnasölu í sögu Ísraela á sama tíma og þeir hafa verið gagnrýndir víða um heim fyrir stríðsrekstur sinn.
Samningurinn er hluti af nýju loftvarnakerfi fyrir Grikki en báðar þessar Miðjarðarhafsþjóðir hafa undanfarið átt í stirðum samskiptum við Tyrki.
Ber vott um styrk Ísraela
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir ánægju sinni með samninginn og sagði hana bera vott um mikinn styrk Ísraela og traust í garð útflutnings þjóðarinnar á hergögnum.
Í loftvarnakerfinu, sem nefnist Akkillesarskjöldurinn, eru varnir gegn flugskeytum, flugvélum og drónum.
Gríska varnarmálaráðuneytið sagði samninginn hluta af mestu endurbótum á hernum í sögu landsins. Grikkland verður þar með fyrsta þjóðin innan ESB til að taka í notkun svona margþætt loftvarnakerfi.