Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig í morgun og eru þeir núna 4,25 prósent.
Þar með varð hann fyrsti seðlabankinn á meginlandi Evrópu sem hækkar stýrivexti sína síðan stríðið í Mið-Austurlöndum hófst.
Þetta er í fyrsta sinn síðan í desember árið 2023 sem norski seðlabankinn hækkar stýrivexti sína, að sögn TV2.
Verðbólga í Noregi hefur verið í kringum þrjú prósent í langan tíma, sem er töluvert frá verðbólgumarkmiði bankans sem er tvö prósent.
Óbreyttir stýrivextir í Svíþjóð
Sænski seðlabankinn ákvað aftur á móti í morgun að halda stýrivöxtunum óbreyttum og eru þeir því áfram 1,75 prósent, að því er SVT greindi frá.
Stýrivextirnir í Svíþjóð hafa verið þeir sömu síðan í október í fyrra.
Næsta stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands verður 20. maí næstkomandi. Í mars síðastliðnum voru stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig og eru þeir nú 7,5%. Verðbólgan hér á landi mældist 5,2% í apríl.
Landsbankinn sagðist í fyrr í vikunni gera ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta við næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans.
