Fyrsta stiklan fyrir kvikmyndina Tony, sem byggð er á lífi bandaríska matreiðslu- og sjónvarpsmannsins Anthony Bourdain heitins, var birt á YouTube fyrr í þessum mánuði og hefur þegar vakið mikla athygli. Ríflega níu milljónir manns hafa horft á stikluna.
Myndin fjallar um Bourdain þegar hann var aðeins 19 ára gamall og að stíga sín fyrstu skref í matreiðsluheiminum. Leikarinn Dominic Sessa, sem margir þekkja úr verðlaunamyndinni The Holdovers, fer með aðalhlutverkið í Tony, sem verður frumsýnd í ágúst. Með önnur hlutverk fara Emilia Jones, Rich Sommer, Leo Woodall og Antonio Banderas.
Bourdain var virtur matreiðslumaður og starfaði meðal annars sem yfirkokkur á veitingastaðnum Brasserie Les Halles á Manhattan um árabil. Veitingastaðurinn lokaði dyrum sínum árið 2017. Hann gaf einnig út vinsælar matreiðslubækur og stjórnaði þáttum þar sem hann ferðaðist víða um heim og kynnti sér matarmenningu ólíkra landa.
Bourdain féll fyrir eigin hendi í júní árið 2018, 61 árs að aldri.
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.