„Það gefur auga leið að erfiðara er að viðhafa góðar sýkingarvarnir við aðstæður eins og verið hafa á bráðamóttökunni um langt skeið.”
Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is vegna ummæla Atla Dags Sigurðssonar, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, sem greindist með berklasmit. Atli Dagur sagði að ástandið á spítalanum væri óbreytt frá fundi sem bráðamóttakan hélt í febrúar. Þar var talað um að smitvarnir spítalans væru litlar sem engar þegar hann væri yfirfullur.
„Það sem heilbrigðisráðherra/ráðuneytið getur gert til að bæta aðstæður er að létta álagi af deildinni eins og framast er kostur. Það hefur verið gert,” segir jafnframt í svarinu.
Staðan mælanlega betri en á fundinum
Fram kemur að gripið hafi verið til margvíslegra aðgerða vegna álags á bráðamóttökunni með áherslu á úrræði sem gera Landspítala kleift að útskrifa aldraða einstaklinga með færni- og heilsumat í viðeigandi úrræði.
„Staðan á Landspítala hvað þetta varðar er mælanlega betri nú en hún var á fundi starfsfólksins 11. febrúar síðastliðinn. Í vikunni (26. maí) voru 76 einstaklingar með færni og heilsumat á Landspítala en þegar verst lét fór fjöldinn yfir 130 og var lengi vel um milli 100 og 120,” segir í svarinu.
Þar segir einnig að sýkingarvarnirnar sjálfar og hvernig að þeim er staðið sé hlutverk og á ábyrgð spítalans sjálfs. Bent er á ummæli yfirlæknis smitsjúkdómadeildar á Landspítala í viðtali við RÚV þar sem hann segir að með auknum fjölbreytileika samfélagsins og tíðari ferðalögum milli landa aukist hættan á því að fólk sé útsett fyrir berklasmiti. Sífellt sé unnið að því að bæta verklag við smitvarnir á deildum spítalans.
Flestir berklasmitaðir fá aldrei sjúkdóm
Varðandi viðbrögð hjúkrunarfræðingsins í tengslum við berklasmit hans kemur fram í svarinu að hér á landi greinast árlega 10 til 20 berklasmit á ári.
„Skiljanlega er fólki brugðið sem greinist með smit, heilbrigðisstarfsfólki sem öðrum. Það skal undirstrikað að berklasmit þýðir að einstaklingur hefur komist í snertingu við berklabakteríuna en ónæmiskerfið heldur henni í skefjum. Viðkomandi er ekki veikur, hefur engin einkenni og getur ekki smitað aðra við neinar aðstæður. Flestir sem eru með berklasmit fá aldrei sjúkdóm, en flestum á Íslandi er boðin lyfjameðferð til að minnka líkur á framtíðarberklum,” segir ráðuneytið í svarinu.


