Amparo del Giudice gróf með berum höndum í risastóran steinsteypuhaug í leit að syni sínum sem var fastur undir rústum eftir öflugasta jarðskjálfta í Venesúela síðan 1900.
Hennar harmleikur var einn af mörgum sem áttu sér stað eftir að jarðskjálftar af stærðinni 7,2 og 7,5 riðu yfir norðurhluta Venesúela með stuttu millibili á miðvikudagskvöld. La Guaira var eitt af þeim svæðum sem urðu verst úti.
Tala látinna í skjálftunum er komin í 235 og um 4.300 eru slasaðir.
Ómögulegt að gera þetta með berum höndum
,,Þetta er svo mikið grjót og það er ómögulegt að gera þetta með berum höndum,“ sagði hún, sitjandi skammt frá þeim stað þar sem hún taldi son sinn vera fastan.
Barnabarn hennar, Alessandro, 23 ára, setti á sig hjálm sjálfboðaliða í slökkviliðinu og tók þátt í leitinni að föður sínum.
„Hann er þarna inni,“ sagði hann og grét þegar hann horfði á leifar þess sem eitt sinn var bygging.
Á betri tímum var La Guaira, bær með um 25.000 íbúa, staður þar sem fólk frá höfuðborginni Caracas kom til að njóta Karíbahafsins.
Margar byggingar hafa skemmst mikið í skjálftunum og starfandi forseti Venesúela, Delcy Rodriguez, heimsótti svæðið í gær og lýsti það hamfarasvæði.
Öflugir eftirskjálftar í gær
Enn fundust öflugir eftirskjálftar í gær og ganga björgunaraðgerðir hægt. Í borg í La Guaira-fylki, sem varð verst úti, norður af Caracas, hlustuðu íbúar hjálparvana á unga stúlku hrópa á hjálp tímunum saman.
„Við þurfum fólk, hermenn, til að koma og hjálpa svo við getum náð henni út,“ sagði íbúinn Dani Rizo, 48 ára.
Maður gengur um sprungna götu í kjölfar tveggja jarðskjálfta í Los Corales í La Guaira-fylki, um 38 km norðvestur af Caracas
AFP
Skömmu síðar lést stúlkan, sögðu íbúar á staðnum við AFP-fréttaveituna.
Þau eru enn á lífi
Annars staðar í La Guaira heyrðist í þremur einstaklingum í rústum hruninnar byggingar.
„Þau eru enn á lífi… Það er ekkert meira sem við getum gert,“ sagði einn íbúi, Antonio Bermudez. „Við höfum engin verkfæri. Við höfum enga leið til að hjálpa.“
Læknir á Domingo Luciani-sjúkrahúsinu í borginni, sem tjáði sig með skilyrði um nafnleynd, sagði að börn kæmu ein í sjúkrabílum eftir að hafa verið dregin út úr rústunum.
„Sum börn gefa upp nöfn sín, á meðan önnur koma með auðkennisborða á handleggjunum,“ sagði hann.
Margir íbúar höfuðborgarinnar, Caracas, hafa sofið á götum úti eða í bílum sínum.
Rita Gomez, 60 ára, ferðaðist til höfuðborgarinnar eftir að hafa séð á samfélagsmiðlum að byggingin sem dóttir hennar býr í hefði hrunið og að hún svaraði ekki í símann.
Hún sagði við AFP að stórvirkar vinnuvélar væru komnar á staðinn og að „mikil samvinna væri frá nágrönnunum. Við treystum á Guð að þau finni hana á lífi.“

