Fádæma góðviðri hefur leikið við Austfirði yfir helgina og hefur hiti hæst farið upp í 27,4° á Seyðisfirði. Vopnfirðingar og sólþyrstir gestir bæjarins hafa notið 26,9° hita fyrr í dag og boðist að taka þátt í ýmiss konar skemmtun á Vopnaskaki.
Sara Elísabet Svansdóttir, fyrrum sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps og einn skipuleggjenda bæjarhátíðarinnar Vopnaskaks sem fram fór um helgina, segir skemmtunina hafa farið fram eins og í sögu.
„Hér er fullur bær af fólki að njóta dagskrárinnar og blíðunnar,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Aðalskipuleggendur hátíðarinnar, þær Sara Elísabet Svansdóttir og Fanney Björk Friðriksdóttir.
Ljósmynd/Aðsend
Hápunkturinn í gær þrátt fyrir sterkar hviður
Dagurinn í dag byrjaði á dorgveiðikeppni fyrir börnin og svo gat hver sem er gengið í gömlu störfin á hinum hátíðlega Bustarfellsdegi, þegar gamli bærinn á Bustarfelli lifnar við og fólk getur kynnst lífinu eins og það var í gamla daga.
Í gærkvöldi náði hátíðin svo hápunkti að sögn Söru, með útitónleikum á Framtíðartorgi í miðbæ Vopnafjarðar og tónleikum BlazRoca á barnum í Miklagarði á miðnætti.
„Það var búið að dreifa heyböggum niðri í bæ og gera bæinn mjög flottan, og hljómsveit Jóns Hilmars kom og var með útitónleika ásamt fullt af gestum,“ segir hún, en meðal gesta voru þau Herbert Guðmundsson, Eyþór Ingi, Jónsi, Ísabella og Amelía.
Lokaatriði kvöldsins, Daði Freyr, þurfti þó að flytja sig inn í íþróttahúsið og klára tónleika sína þar vegna sterkra vindhviða í bænum.











