Nancy Kissinger, eiginkona Henrys Kissingers, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er látin 92 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu í South Kent í Connecticut í dag, fimmtudag, að því er fjölskylda hennar greinir frá andlátinu.
Um frú Kissinger segir í bandaríska dagblaðinu New York Times:
„Frú Kissinger var klók í stjórnmálum, vel að sér í alþjóðamálum og varði nafn eiginmanns síns af hörku. Hún ferðaðist víða með honum í erindagjörðum eftir að þau giftu sig árið 1974 og þegar herra Kissinger lét af embætti þremur árum síðar voru þau oft gestir í ríkiskvöldverðum, sendiráðsveislum og móttökum Repúblikana í Hvíta húsinu.“
Segir þar enn fremur að hjónin hafi sett svip sinn á lífið í New York-borg þar sem þau bjuggu aðallega. Þau sóttu opnanir safna og tískusýningar Bill Blass og Oscar de la Renta.
Henry Kissinger lést árið 2023, en hann náði þeim merka áfanga að verða 100 ára fyrr það sama ár.
Kissinger-hjónin áttu engin börn saman en áður en hann tók saman við Nancy átti hann tvö börn, Elizabeth Vandermark og David Kissinger. Barnabörnin eru fimm.
