Indó mælist efst allra fyrirtækja annað árið í röð á Sjálfbærniásnum en viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins fór fram í dag þar sem 17 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Prósent, Langbrók og Stjórnvísi.
Þetta er í þriðja sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni.
Í ár voru mæld 60 fyrirtæki í 14 helstu atvinnugreinum á Íslandi:
Álver – Bankar – Byggingavöruverslanir – Eldsneytis- og hraðhleðslustöðvar – Fjarskiptafyrirtæki – Flutningafyrirtæki – Framleiðslufyrirtæki – Fyrirtæki á alþjóðamarkaði – Matvöruverslanir – Opinber fyrirtæki – Raforkusölur – Sjávarútvegsfyrirtæki – Tryggingafélög – Upplýsingatæknifyrirtæki.
Indó skoraði hæst og fékk 82 stig. Össur varð í öðru sæti með 81 stig og Íslensk erfðagreining, sem var sigurvegari Sjálfbærniássins 2024, var þriðja hæst með 80 stig.
Þau fyrirtæki sem bæta sig mest á milli ára eru: Norðurál, Íslandsbanki, Samskip og Brim. Sá markaður sem bætir sig mest á milli ára eru bankar. Það fyrirtæki sem lækkar mest á milli ára er ISAVIA og mælist neðst á mælikvarðanum með 34 stig.

