Eduardo Bolsonaro, sonur Jair Bolsonaro, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að beita sér fyrir refsiaðgerðum Bandaríkjamanna á Brasilíu þegar faðir hans fór fyrir dóm.
Jair Bolsonaro situr í 27 ára fangelsi fyrir áætlað valdarán árið 2022. Eduardo Bolsonaro hefur verið búsettur í Bandaríkjunum og var ekki viðstaddur þegar dómur hans var kveðinn upp.
Eduardo var fundinn sekur um að hóta dómsvaldi Brasilíu með refsiaðgerðum Bandaríkjanna ef dómsmál föður hans kæmi ekki vel út fyrir hann. Verður honum einnig óheimilt að gegna opinberu hlutverki í 8 ár.
Tilgangslausar ofsóknir
Eduardo Bolsonaro segir dómsmálið tilgangslausa tilraun til þess að koma í veg fyrir að hann geti boðið sig fram í vetur. Þá hefur hann áætlað að bjóða sig fram sem varaþingmann í komandi kosningum í október.
Við fyrstu sýn gekk refsiaðgerðaáætlun Eduardos vel þar sem ríkisstjórn Donalds Trump lagði mikla tolla á Brasilíu fyrir „ofsóknir“ þeirra á Bolsonaro eldri.
Tollarnir lágu þó ekki lengi á Brasilíumönnum en eftir fyrsta fund Trumps og Lula Da Silva, forseta Brasilíu, var tollunum aflétt.