Gögn um viðtal við barn í Barnahúsi lágu ekki fyrir hjá ríkissaksóknara þegar embættið felldi úr gildi ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn í máli barns sem dvaldi á Múlaborg á sama tíma og dæmdur kynferðisbrotamaður starfaði þar.
Vegna skorts á þessum gögnum taldi ríkissaksóknari að rannsókn málsins væri ófullnægjandi og vísaði því aftur til lögreglu til frekari rannsóknar.
Síðar kom hins vegar í ljós að viðtalið hafði þegar verið tekið. Gögn um það höfðu þó hvorki verið send ríkissaksóknara né vistuð undir málsnúmeri þess í málaskrá lögreglu.
„Gat ekki annað en ályktað“
„Ríkissaksóknari gat ekki annað en ályktað sem svo að það ætti eftir að taka það viðtal við barnið,“ segir í svari Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara til mbl.is.
Að lokinni frekari skoðun var rannsókn málsins aftur felld niður.
Niðurfellingar lögreglu á rannsóknum vegna þriggja barna sem dvöldu á Múlaborg voru kærðar til ríkissaksóknara.
Fyrirspurn mbl.is til ríkissaksóknara laut að því hvaða þættir rannsóknanna hefðu verið taldir ófullnægjandi þegar embættið tók kærurnar til meðferðar.
Ákvörðun staðfest og kærufrestur liðinn
Hannes Valle Þorsteinsson, fyrrverandi starfsmaður á leikskólanum, var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot gegn einu barni en rannsókn á málum þriggja barna til viðbótar var kærð til ríkissaksóknara.
Málin voru send til lögreglu til frekari rannsóknar en þau svo felld niður að nýju. Í hinum tveimur málunum var kærufrestur liðinn í öðru tilvikinu og í hinu var ákvörðun lögreglu staðfest.