Gömul póstkort frá Íslandi urðu til þess að Ambika, sem ólst upp í SOS-barnaþorpi á Indlandi, fór að leita að íslenska styrktarforeldrinu sínu, Guðrúnu Hafdísi Karlsdóttur. Leitin vakti mikla athygli hér á landi í fyrra og nú er loksins komið að því að þær hittist í fyrsta sinn.
Hafdís var styrktarforeldri Ambiku frá árinu 1993 til 2012. Á þeim árum fékk Ambika reglulega bréf frá barnaþorpinu og stundum póstkort frá Hafdísi með myndum frá Íslandi, meðal annars af náttúrunni og norðurljósunum.
Árin liðu og Ambika varð fullorðin og fór að standa á eigin fótum. Þegar hún og eiginmaður hennar voru að ganga frá eigum sínum vegna flutninga komu gömlu póstkortin upp úr kössunum.
Hjónin voru þá farin að velta fyrir sér hvert þau ættu að fara í sumarfrí og stakk eiginmaður Ambiku upp á Íslandi. Um leið kviknaði hugmyndin um að reyna að finna Hafdísi.
Máttur Facebook
Ambika reyndi fyrst sjálf að leita að henni á netinu en án árangurs. Hún hafði því samband við SOS Barnaþorpin á Íslandi og bað samtökin um aðstoð. Leitin reyndist ekki einföld. Vegna persónuverndar voru gömlu tengslin milli styrktarforeldra og styrktarbarns ekki lengur aðgengileg í tölvukerfi samtakanna. Að lokum var ákveðið að reyna á mátt samfélagsmiðla og auglýsa eftir Hafdísi á Facebook-síðu SOS Barnaþorpanna. Viðbrögðin létu ekki á sér standa – Hafdís fannst daginn eftir.
Ambika og eiginmaður hennar ákváðu í kjölfarið að koma til Íslands síðasta sumar og hitta Hafdísi þá. Ekkert varð þó af ferðinni þar sem þeim tókst ekki að fá Schengen-vegabréfsáritun í tæka tíð. Samband þeirra Ambiku og Hafdísar hafði engu að síður verið endurvakið.
Þær hafa skrifast á síðan og Ambika sendi Hafdísi meðal annars teikningu eftir sig. Hafdís hafði sjálf varðveitt öll gömlu bréfin og myndirnar af Ambiku sem henni bárust frá SOS-barnaþorpinu á sínum tíma og á þau enn. Fyrir nokkrum vikum sendi Hafdís Ambiku svo buff með Íslandsmerkingu sem hún getur haft með sér þegar hún ferðast um landið.
Önnur tilraun
Nú er ferðin loksins komin á hreint. Hans Steinar Bjarnason, markaðs- og kynningarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi, segir Ambiku og eiginmann hennar komin með vegabréfsáritun og ferðina staðfesta.
Þetta verður fyrsta utanlandsferð þeirra hjóna. Þau eru væntanleg til landsins undir lok september og ætla að ferðast um landið í um tvær vikur með hópi indverskra ferðamanna.
Ambika og eiginmaður hennar hafa mikinn áhuga á útivist og vilja meðal annars ganga og skoða landið vel meðan á dvölinni stendur. Fyrir Ambiku verður það jafnframt í fyrsta sinn sem hún sér með eigin augum landið sem hún kynntist fyrst í gegnum póstkortin.
Að ferðalaginu loknu, 5. október, hittast þær svo augliti til auglitis, á skrifstofu SOS Barnaþorpanna, rúmum þremur áratugum eftir að Hafdís varð styrktarforeldri Ambiku.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem … en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
