Algjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri Árborgar en rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins var jákvæð um tæpan einn og hálfan milljarð árið 2025 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 67 milljóna jákvæðri niðurstöðu.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, segir niðurstöðuna afrakstur þeirra aðgerða sem meirihluti hans hefur ráðist í á þessu kjörtímabili.
Sjálfstæðismenn, undir forystu Braga, hlutu meirihluta kjörinna bæjarfulltrúa árið 2022 en þá var fjárhagsstaða sveitarfélagsins mjög slæm. Þurfti sveitarfélagið meðal annars að semja við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um það hvernig koma skyldi rekstrinum á réttan kjöl.
Fækkað stöðugildum og selt eignir
Rekstarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins gerði ráð fyrir 525 milljóna króna neikvæðri niðurstöðu, en niðurstaðan varð að lokum jákvæð upp á 620 milljónir.
„Frá upphafi kjörtímabilsins, þegar við tókum við grafalvarlegri stöðu sveitarfélagsins sem stefndi í greiðsluþrot, höfum við ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir. Við höfum fækkað stöðugildum, selt eignir og því miður hefur þetta lent að hluta til á okkur íbúunum með álaginu á útsvarið sem lagt var á í eitt ár,“ segir Bragi í samtali við mbl.is en hann segir samblöndu af þessum aðgerðum valda því að fjármál sveitarfélagsins hafa færst á réttan kjöl.
Árborg skilaði einnig jákvæðri niðurstöðu árið 2024 en þá hafði álag verið lagt á útsvar íbúa afturvirkt.
„Ég held að það sé bjart fram undan hjá okkur núna og vonandi leiðir þetta til áframhaldandi lækkun álaga sem við gátum byrjað á strax árið 2026, með verulegri lækkun fasteignagjalda,“ segir bæjarstjórinn sem segir mikinn ávinning fyrir íbúa í því að rekstur sveitarfélagsins sé að lagast hraðar en búist var við.
Svekktur með útsvarsálagið
Áfram Árborg, Framsóknarflokkurinn, Miðflokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta í Árborg á árunum 2018-2022.
„Það er ótrúlegt að það sé hægt að koma sveitarfélaginu á svona slæman stað á einu kjörtímabili,“ segir Bragi um meirihluta þess kjörtímabils.
Útsvar í Árborg er nú í lögbundnu hámarki, 14,97%, auk þess var eins og áður segir lagt álag á útsvarið árið 2024. Hagræðingaraðgerðir þess kjörtímabils hafa því á köflum verið sársaukafullar.
„Við höfum allt kjörtímabilið verið mjög hreinskilin um hvað þyrfti að gera og hvernig við hygðumst takast á við verkefnið. Ég skil mjög vel, sem íbúi sjálfur í Árborg, að vera svekktur að hafa þurft að greiða álagið. Ég geng þó þakklátur og stoltur til kosninga að við höfum náð að komast í gegnum þetta saman. Þetta er verkefni sem allir í sveitarfélaginu tóku þátt í saman.