Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, ritari Framsóknarflokksins, svaraði verknaði skemmdarvarga í Borgarbyggð með regnbogafána.
Lilja hafði nýverið látið útbúa grænan heybagga sem á stóð xB til að auglýsa framboð Framsóknarflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Stuttu síðar var búið að mála Miðflokksauglýsingu „X-M“ yfir áletrunina á bagganum.
Sárt að fólk virði ekki annara eigur
„Þetta er fúlt, ég veit ekkert hver gerði þetta en það er náttúrulega bara sárt að fólk beri ekki virðingu fyrir eigum annarra,“ segir Lilja í samtali við mbl.is.
„Það er allt í lagi að vera í pólitík en við skulum bera virðingu hvert fyrir öðru í leiðinni,“ segir hún.
Lilja tók svo þá ákvörðun að svara verknaðinum með því að hengja stóran regnbogafána á baggann.
