Gabríel Douane Boama hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 6. maí en hann er grunaður um tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað 5. mars.
Tveir grímuklæddir menn spörkuðu þá upp útidyrahurð í íbúð manns sem þar var staddur ásamt kærustu sinni og réðust að honum, annar með hnífi en hinn með öxi, en brotaþoli bar kennsl á Gabríel sem annan þeirra.
Á hann að hafa lamið manninn með öxinni í höfuðið svo hann hlaut nokkra skurði á höfði, þar á meðal djúpan skurð á gagnauga.
Hélt að verið væri að drepa hann
Í skýrslutöku sagði kærasta mannsins að hún hafi heyrt þegar útidyrahurðinni var sparkað upp og í kjölfarið séð hvernig hurðin að herbergi þeirra hafi verið „tætt með vopnum“, eins og það er orðað í úrskurðinum. Hún kvaðst hafa séð tvo grímuklædda menn ráðast á kærasta sinn, annar hafi notað öxi en hinn verið að „slice-a“ með hnífnum. Hún sagðist halda að verið væri að drepa kærasta hennar.
Gabríel og félagi hans voru handteknir um nóttina í stigagangi fjölbýlishúss, þar sem þeir voru skólausir á leið upp úr kjallaranum og sögðust hafa verið að slaka á í sameigninni.
Lögregla veitti því athygli að þvottavél var í gangi um miðja nótt og lagði hald á fatnaðinn í vélinni og tvo bakpoka sem fundust við húsleit, en brotaþoli hafði greint frá því að öxin hefði verið sett í bakpoka eftir árásina.
Hnífstunga í febrúar
Gabríel neitaði að tjá sig í skýrslutöku. Hann var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 5.–12. mars, síðan í áframhaldandi gæsluvarðhald frá 12. mars – 9. apríl og loks frá 9. apríl til 6. maí. Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald var kærður en Landsréttur staðfesti úrskurðinn 14. apríl.
Fallist var á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, þar sem fyrir lá rökstuddur grunur um brot sem varðar fangelsisrefsingu, og c-liðar 1. mgr. 95. gr., þar sem talin var hætta á áframhaldandi brotastarfsemi.
Dómurinn taldi að rökstuddur grunur væri um aðild hans að mjög alvarlegu ofbeldisbroti, tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulegri líkamsárás, sem geti varðað allt að 16 ára fangelsi.
Dómurinn vísaði jafnframt til langvarandi brotaferils Gabríels, nær óslitið frá árinu 2021, fjölmargra refsidóma, meðal annars vegna ofbeldisbrota, og þess að hann lauk nýlega afplánun 3. febrúar en hafi síðan tvívegis verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þá liggi hann undir grun um fleiri alvarleg brot, meðal annars hnífstungu í febrúar, og hafi haldið áfram brotastarfsemi þrátt fyrir nýlegan dóm. Talið var að hann myndi að óbreyttu halda áfram brotastarfsemi yrði hann látinn laus.