Bikarmeistarar Keflavíkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta með sigri á KR á útivelli í oddaleik á Meistaravöllum í kvöld, 91:83.
Keflavík mætir ríkjandi Íslandsmeisturunum í Haukum í undanúrslitum.
KR-ingar voru skrefinu á undan allan fyrsta leikhluta og komust í 19:13 þegar skammt var eftir. Keflavík lagaði stöðuna örlítið og munaði fjórum stigum eftir leikhlutann, 25:21.
Keflavík byrjaði annan leikhluta betur og jafnaði í 31:31 um miðjan leikhlutann og komst síðan yfir í kjölfarið í fyrsta skipti frá því í stöðunni 2:0. Liðin skiptust á að skora næstu mínútur og að lokum var KR með naumt forskot í hálfleik, 46:45.
Liðin skiptust nokkurn veginn á að skora allan fjórða leikhlutann og var jafnræðið gríðarlegt. Það munaði því aðeins tveimur stigum fyrir fjórða og síðasta leikhlutann en þá var Keflavík með 70:68-forskot.
KR jafnaði í 76:76 þegar rúmar sex mínútur voru til leiksloka. Keflavík átti næsta áhlaup og komst í 81:76 þegar fimm mínútur voru eftir. Keishana Washington fór svo hamförum á lokakaflanum og sá um það að koma Keflavík áfram í undanúrslitin.
KR – Keflavík 83:91
Meistaravellir, Bónus deild kvenna, 16. apríl 2026.
Gangur leiksins:: 6:7, 13:9, 19:13, 25:18, 30:25, 33:31, 37:39, 43:45, 48:51, 57:59, 61:63, 68:70, 73:74, 76:81, 81:84, 83:91.
KR: Molly Kaiser 30/5 fráköst/5 stoðsendingar, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 19/6 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 11/8 fráköst, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 9/7 fráköst, Eve Braslis 9/9 fráköst/6 stoðsendingar, Anna María Magnúsdóttir 3/4 fráköst, Hanna Þráinsdóttir 2.
Fráköst: 25 í vörn, 14 í sókn.
Keflavík: Keishana Washington 39/7 fráköst/7 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 11/6 fráköst/5 stoðsendingar, Angelina Turmel 10/5 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9, Sara Rún Hinriksdóttir 6/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 5, Agnes María Svansdóttir 5/5 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4, Anna Lára Vignisdóttir 2.
Fráköst: 30 í vörn, 3 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Jón Þór Eyþórsson.
Áhorfendur: 343